Forystugrein – Enter
Enter

Það er ekki laust við að mann setji hjóðan þegar þær fregnir berast að hinn þögli frændi okkar í suðri, mannapinn, verði horfinn úr lífríkinu innan fárra ára.

Það er að segja - ef ekkert er að gert.

Hvernig væri þá að gera eitthvað? Hvernig væri nú að yfirvöld á Íslandi tækju við sér, sópuðu kreddufenginni og fasískri dýralöggjöf undir teppi og opnuðu landið fyrir þessum glaðværu skepnum?

Nægt rými væri fyrir gróskumikil apasamfélög á jarðhitasvæðum ýmiskonar og eins má finna feykinóg húsrými í lítið notuðum þéttbýlisstöðum hér á landi. Þá væri aldeilis ekki úr vegi að landsmenn fóstruðu eins og einn apa hver.

Sjimpansapinn er ákaflega geðgóður og ljúfur í umgengni. Hann getur létt undir við húsverkin og veitt einmana sálum félagsskap langt umfram hund eða kött. Stærri dýrin eru kannski ekki eins opin og auðveld í umgengni, en órangútaninn veit ég að er vinur vina sinna - rétt eins og górillan sem auk þess að hafa ríka kímnigáfu getur aðstoðað við snjómokstur og ýmsa útivinnu.

Ég skora því hér með á ríkisstjórn lýðveldisins að breyta íslenskri grundu tafarlaust í griðland fyrir aðra apa en sjálfa sig.

Fréttir
Enter – 3/6/13
 
Númi Fannsker – 28/5/13
 
Útgáfa
Lesbók frá fyrri tíð

Nú vilja æðstuskrýplarnir í hæstarétti fá nýtt dómstig. Því það er svo ógeðslega mikið að gera hjá þeim.

Vesalings kall- og kellingartuskurnar.

Þau ná varla að strauja skikkjurnar sínar, hvað þá lepja froðuna af lattebollunum áður en þau þurfa að ómaka sig í þingsal til að hlýða á eitthvað drepleiðinlegt tuð, sem vel mætti afgreiða af einhverjum löggröðum millistjórnendum.

Ég tala nú ekki um að fara að lesa öll þessi býsn af skjölum og skruddum til að setja sig inn í málin. Friðurinn er gersamlega úti.

Þau eiga samúð mína alla, litlu skinnin.

Bætum tafalaust við þriðja dómstiginu. Þeim má svo skipta í forrétt, aðalrétt og svo eftirrétt.

Enter – Gagnrýni
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
        1, 2, 3, ... 88, 89, 90  
Þjóðbók
Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA