Forystugrein – Enter
Enter

Það er ekki laust við að mann setji hjóðan þegar þær fregnir berast að hinn þögli frændi okkar í suðri, mannapinn, verði horfinn úr lífríkinu innan fárra ára.

Það er að segja - ef ekkert er að gert.

Hvernig væri þá að gera eitthvað? Hvernig væri nú að yfirvöld á Íslandi tækju við sér, sópuðu kreddufenginni og fasískri dýralöggjöf undir teppi og opnuðu landið fyrir þessum glaðværu skepnum?

Nægt rými væri fyrir gróskumikil apasamfélög á jarðhitasvæðum ýmiskonar og eins má finna feykinóg húsrými í lítið notuðum þéttbýlisstöðum hér á landi. Þá væri aldeilis ekki úr vegi að landsmenn fóstruðu eins og einn apa hver.

Sjimpansapinn er ákaflega geðgóður og ljúfur í umgengni. Hann getur létt undir við húsverkin og veitt einmana sálum félagsskap langt umfram hund eða kött. Stærri dýrin eru kannski ekki eins opin og auðveld í umgengni, en órangútaninn veit ég að er vinur vina sinna - rétt eins og górillan sem auk þess að hafa ríka kímnigáfu getur aðstoðað við snjómokstur og ýmsa útivinnu.

Ég skora því hér með á ríkisstjórn lýðveldisins að breyta íslenskri grundu tafarlaust í griðland fyrir aðra apa en sjálfa sig.

Lesbók frá fyrri tíð

"Veðurstofan ráðleggur fólki að vera ekki að óþörfu á ferli utandyra á morgun og festa kyrfilega lausa muni sem gætu fokið."

Er nú þannig komið fyrir okkur?

Er okkur ekki lengur treystandi til að taka móti dulitlum norðvestan andvara?

Svei mér þá, ég bara neita að trúa því að við séum orðnir slíkir ofdekraðir, ofverndaðir aumingjar að við þurfum opinber tilmæli í hvert sinn sem hvessir á þessu skeri.

Persónulega ætla ég út í góða veðrið - blotna, frjósa og öskra mér til hita. Alla sanna Íslendinga hvet ég til slíks hins sama - aðrir geta flutt sig og sitt hafurtask til Danmerkur.

Spesi – Dagbók
 
Spesi – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Spesi – Dagbók
 
Spesi – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Sálmur
 
Spesi – Dagbók
 
Enter – Sálmur
 
Enter – Sálmur
 
Enter – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Spesi – Forystugrein
 
Spesi – Sálmur
 
Fannar Númason Fannsker – Forystugrein
 
        1, 2, 3 ... 84, 85, 86 ... 88, 89, 90  
Þjóðbók
Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA