Forystugrein – Enter
Enter

Það er ekki laust við að mann setji hjóðan þegar þær fregnir berast að hinn þögli frændi okkar í suðri, mannapinn, verði horfinn úr lífríkinu innan fárra ára.

Það er að segja - ef ekkert er að gert.

Hvernig væri þá að gera eitthvað? Hvernig væri nú að yfirvöld á Íslandi tækju við sér, sópuðu kreddufenginni og fasískri dýralöggjöf undir teppi og opnuðu landið fyrir þessum glaðværu skepnum?

Nægt rými væri fyrir gróskumikil apasamfélög á jarðhitasvæðum ýmiskonar og eins má finna feykinóg húsrými í lítið notuðum þéttbýlisstöðum hér á landi. Þá væri aldeilis ekki úr vegi að landsmenn fóstruðu eins og einn apa hver.

Sjimpansapinn er ákaflega geðgóður og ljúfur í umgengni. Hann getur létt undir við húsverkin og veitt einmana sálum félagsskap langt umfram hund eða kött. Stærri dýrin eru kannski ekki eins opin og auðveld í umgengni, en órangútaninn veit ég að er vinur vina sinna - rétt eins og górillan sem auk þess að hafa ríka kímnigáfu getur aðstoðað við snjómokstur og ýmsa útivinnu.

Ég skora því hér með á ríkisstjórn lýðveldisins að breyta íslenskri grundu tafarlaust í griðland fyrir aðra apa en sjálfa sig.

Lesbók frá fyrri tíð

Hæstvirtur Olrich hyggst nú hysja buxur upp um berrassað marghýtt menntakerfi Íslendinga. Húrra fyrir því.

Halda þessum óalandi gemlingum innandyra meiripart ársins, taka þá á taugum í þéttriðnu prófaneti og flæma síðan úr landi ári fyrr. Húrra fyrir því!

Grisja þessa síkjökrandi sníkjustétt kennara. Sigta burt rasssíð letidýrin og svelta til hlýðni þá sem eftir krjúpa. Húrra fyrir því!!

Tæma loftlaus múrvirkin sem þegar standa, í stað þess að klambra upp rándýrum nýmóðins skólum; bólstruðum, vistvænum - sænskum. Húrra fyrir því!!!

Hæstvirtur Olrich, nú vantar bara skólabúninga, þá væri nú gaman að lifa. Húrra fyrir þér!!!!

Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Sálmur
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Sálmur
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Gagnrýni
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Myglar – Dagbók
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Gagnrýni
 
     1, 2, 3 ... 88, 89, 90  
Þjóðbók
Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA