Lesbók19.11.03 — Enter

Mikið var ég stoltur þegar ég eignaðist fyrsta sparibaukinn minn. Hann var silfursleginn, í líki glaðlynds stokkandarunga - með fölbláan trefil og skotthúfu í stíl.

Mikið var ég rogginn þegar ég fór í fyrsta skiptið með sparibaukinn minn í bankann - taldi úr honum túkalla, krónupeninga og allnokkra aura - meir að segja 10 krónu seðil - og lét leggja inn á gullslegna sparibók.

---

Og mikið verð ég illur þegar ég nú horfi upp á baukagerðarmennina svolgra í sig landið mitt með öllum þeim fimmeyringum, túköllum og tíukrónuseðlum sem þjóðin hefur í einfeldni sinni fært þeim úr silfurbaukum sínum.

 
Kaktuz — Saga
 
Kaktuz — Sálmur
 
Númi Fannsker — Sálmur
 
Fannar Númason Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Sálmur
 
Enter — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
        1, 2, 3 ... , 180, 181, 182