Lesbók12.11.03 — Enter

864 milljónir GSM-notenda.

Eitt orð frá hverjum þeirra - meira en ég kæri mig um að heyra alla mína ævi.

Hvað þarf fólk að tala svona mikið um? Hvað hefur það að segja? Og af hverju allt í einu núna?

Var yfirleitt líf á þessari plánetu fyrir tíð farsímans? Hvernig náði fólk saman - kynntist? Hittust í alvöru allir við klukkuna á Lækjartorgi klukkan tvö? Allir.

Og hvernig er það - var möguleiki á að túlka tilfinningar mannskepnunnar á fullnægjandi hátt fyrir tíð broskallsins? Segið mér í alvöru - getur eitthvert hið fegursta ástarljóð keppt við ;-) - eða fangað hinn óbærilega sársauka ;( ?

Þið. Þið áttahundruðsextíuogfjórar milljónirnar ykkar! Ekki klúðra þessu núna. Ekki glutra niður því litla sem við þó höfum áorkað.

Í guðs bænum slökkvið á símunum - ekki tala bara sundur..

..talið saman.

 
Enter — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Myglar — Dagbók
 
Enter — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Dagbók
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Gagnrýni
 
        1, 2, 3, 4, 5, 6 ... 180, 181, 182