Afkaplega er ömurlegt að heyra endalaust af þessu dópjapli fólks.
Lögreglan er sí og æ að hirða e-pillur og avítamín af einhverjum smákrökkum, rífandi taðvafninga út úr húsfreyjum og snýtandi upplyftiduft úr nösum einhverra lampaleginna uppskafninga.
Leiðist fólki svona óskaplega? - er svona leiðinlegt í sjónvarpinu? Þarf virkilega að belgja sig út af eitri og deyfiefnum til að skjögra gegnum hversdaginn?
Bull.
Í guðanna bænum. Af hverju farið þið ekki í sund? spilið á spil eða bakið pönnuklökur? eða dansið hvert við annað?
Hvað er betra en að dansa?
Allt er betra en þetta.