Skv. nýrri skoðanakönnun vilja 68% landsmanna Ólaf Ragnar Grímsson áfram sem forseta. Það er dágóður slatti, en auðvitað er of snemmt að spökulera í slíku þegar fólki hefur ekki verið gerð grein fyrir valkostunum. Reyndar hefur Snorri Ásmundsson listamaður og heilari skýrt frá því að hann hyggist bjóða sig fram og sigra.
En hverjir eru hugsanlegir mótframbjóðendur Ólafs Ragnars og Snorra í næstu kosningum? Mér þætti gaman að sjá eftirfarandi frambjóðendur:
Þrátt fyrir þennan (óska)lista yfir hugsanlega mótframbjóðendur Ólafs Ragnars og Snorra er aðeins einn Íslendingur sem allir vita að gæti fellt Ólaf Ragnar. Aðeins ein manneskja nýtur þess trausts og aðdáunar að geta, með miklum yfirburðum, sigrað sitjandi forseta í kosningum. Ein kona sem með brotthvarfi sínu úr stóli forseta Íslands skildi þjóðina eftir fulla af söknuði.
Góðu vinir, við viljum Vigdísi aftur sem forseta!