Lesbók24.10.03 — Enter

Á dögunum fékk ég þrívegis sent sama tölvuskeytið frá bláókunnugu fólki, þeim Melanie Terry (2dsawmp@atlas.cz) , Moses Stratton (cvvv957aya@atlantis.com) og Pansy Gonzalez (ikv2eov@atos.warman.com.pl) - hvöttu þau mig öll til að kynna mér Cialagën reðurstækkunarpillurnar frá bandaríska lyfjafyrirtækinu Larkin and Pierce (L&P).

Nú kann ég engin deili á þessu ágæta fólki - ég man ekki eftir neinni Melanie eða Pansy - og eini Mósesinn sem ég hef átt samskipti við var skapstyggur hrútur úr Breiðafirði. Ekkert þeirra svarar ítrekuðum tölvubréfum mínum og engar upplýsingar um þau var að hafa hjá annars liðlegu starfsfólki atlas.cz í Tékklandi, honum Ruben hjá atos.warman.com.pl í Póllandi eða geðvondum netstjóra atlantis.com. Ég fylltist því eðlilega grunsemdum og spurði mig hvers vegna þessu leyndardómsfulla fólki væri svo umhugað um limlengd mína og kynheilsu.

Ég kannaði málið.

Cialagën töflurnar eru þróaðar af læknum og þvagfærasérfræðingum L&P og innihalda að sögn samvirkandi blöndu náttúrulega efna víðs vegar að úr heiminum - sem er auðvitað ágætt út af fyrir sig, þó svo ekki nái innihaldslýsingin lengra.

En hvað um það - meginvirkni taflanna er sú að þær fjölga æðum innan reðurs og útvíkka þær umtalsvert - aukinheldur styrkja þær og lengja liðbönd við reðurrótina. Með þessu má auka lengd reðurs um allt að 50 prósentustig og ummál um ein 30%, ef vel tekst til. Dæmi eru um að limir hafi lengst um hátt í fimm tommur, eða tæpa 13 sentimetra - sem er allbærilegt, myndi ég halda, auk þess sem fullnægja karlmannsins er sögð aukast til muna og jöfnunartími eftir sáðlát sagður minnka að sama skapi.

En snillingarnir hjá L&P láta ekki staðar numið við einfalt pilluát. Onei. Til að tryggja hámarksánægju bjóða þeir einnig upp á hið magnaða EnROPA-þykkni. Sé það drukkið daglega er gulltryggt að eftir u.þ.b. viku eykst vellíðan við sáðlát upp úr öllu valdi. Með því að örva taugaviðbrögð og vöðvasamdrátt í og við liminn veitir mixtúran karlmanninum betri, lengri og kraftmeiri fullnægingu - auk þess sem útferð eykst tilfinnanlega.

Það besta við þetta allt saman er að engar aukaverkanir eru af þessum merkilegu vörum - bara með því að bryðja nokkrar pillur og skola þeim niður með kynörvandi afmorsblöndu tekur líf þitt - og þeirra annarra sem not hafa af nýja tryllitækinu - stórkostlegum breytingum til hins betra, sjálfstraustið eykst og hamingjan vex. Eða eins og hann Ranj frá Newport, Kaliforníu orðar það: "..Þetta virkar - ég byrjaði á þessu fyrir mánuði og konan hafði áður en varði orð á því að það hefði stækkað. Það var mér mikils virði. Takk."

Skaufapumpur og niðurlægjandi umskurðaraðgerðir heyra sögunni til - og niðurlægjandi pískur og hlátrasköll í baðklefum sundlauganna breytast í aðdáunarandvörp og hamingjuóskir. Eini sýnilegi ókosturinn er að nauðsynlegt reynist að endurnýja nærfatasafnið. Þetta getur ekki klikkað.

---

Eftir að hafa kynnt mér þessi fræði fram á aftur á heimasíðu L&P var ég endanlega orðinn sannfærður um ágæti þessara undralyfja. En þar sem ég er maður grandvar að eðlisfari ákvað ég að hringja beint á lagerinn hjá L&P og fá þaðan sendar nokkrar töflur af Cialagën og dulítinn dreytil af EnROPA (bara svona til að prófa) í stað þess að vera að panta þetta gegnum netið og lenda í einhverju bölvuðu veseni með kreditkotanúmer og annan ófögnuð.

Ég var, þegar hér var komið sögu, orðinn nokkuð spenntur fyrir limlengingu og raðfullnægju. Voru mér það því nokkur vonbrigði að komast að því að bandaríska lyfjafyrirtækið Larkin and Pierce er ekki til.

 
Númi Fannsker — Sálmur
 
Enter — Sálmur
 
Enter — Sálmur
 
Númi Fannsker — Sálmur
 
Númi Fannsker — Sálmur
 
Enter — Sálmur
 
Enter — Sálmur
 
        1, 2, 3 ... 180, 181, 182