
Varađu ţig, kćri vinur á flensunni. Hún er útsmogin og óútreiknanleg, flensan. Hún liggur í leyni og bíđur fćris. Felur sig í hnerra afgreiđslumannsins í kjörbúđinni, á vörum elskunnar ţinnar eđa hlátri barnanna ţinna. Hún er fullkomlega samviskulaus, flensan og hennar eina markmiđ er ađ smita. Heltaka ţig af miskunnarleysi sínu og pynta ţig af botnlausri grimmd.
Varađu ţig.
Eins og heimsbyggđinni er kunnugt mun Baggalútur síđar í sumar gefa út geisladisk međ frumsaminni köntrítónlist.
Forsmekkinn af dýrđinni má nú finna á síđunni tonlist.is, en ţar má hlýđa á lagiđ Settu brennivín í mjólkurglasiđ vina (ţví ađ ég er kominn heim) sem er stutt dćmisögn af örţreyttum kindasmala sem ţráir ţađ eitt ađ eiga notalegt kvöld međ ástinni sinni.
Ţađ er kornungur Vesturbćingur, Guđmundur Pálsson, sem syngur lagiđ viđ undirleik köntrísveitar Keflavíkur, en hann ţótti hafa rödd einna líkasta Tony Ztarblaster, sem var vant viđ látinn ađ ţessu sinni vegna ofdrykkju. Um ofsafenginn banjóleik sér velunnarri Baggalúts frá Nashvilleborg í Tennessee-fylki, Ilya Toshinsky.
Í lok ţessa mánađar er svo ađ vćnta meira góđgćtis af ţessu verđandi tímamótaverki íslenskrar tónlistarsögu.