Þá er ræfillinn hann Blaine laus úr búrinu sínu.
Hugsið ykkur bara - að einn færasti sjónhverfingamaður okkar daga hafi setið einn og yfirgefinn hangandi í litlu glerbúri yfir Tempsfljóti í 44 daga.
Að hann skuli ekki hafa freistast til að nýta sér einhverjar þær brellur sjónhvarfaiðnaðarins sem honum eru tamar, s.s. spegla, ljósbrotsbrellur ellegar tölvugaldra - já það kalla ég afrek.