Lesbók13.10.03 — Enter

Góđir Íslendingar, takiđ eftir.

Nú eru meir ađ segja Kínverjar farnir ađ skjóta mönnum út í geiminn. Eftir sitjum viđ međ fáeina fokkera, ţyrlu Landhelgisgćslunnar og Ómar Ragnarsson.

Hvenćr ćtla íslensk stjórnvöld ađ taka af alvöru á ţessum málum? Hvenćr fáum viđ ađ sjá heilsteypta geimferđaáćtlun Íslendinga? Hvenćr verđur ţađ raunverulegur valkostur fyrir íslensk börn ađ verđa geimfarar ţegar ţau vaxa úr grasi?

Ég hlýt ađ skora á ráđamenn ađ ígrunda ţessi mál. Ţađ getur fjandakorniđ ekki veriđ okkur ofviđa ađ tjasla upp einni geimskutlu á sama tíma og viđ erum alvarlega ađ velta ţví fyrir okkur ađ byggja hér tónlistarhús.

Viđ megum ekki láta ţađ eftir okkur ađ sitja heima međan ađrar ţjóđir ţeysa út í víđáttur alheimsins. Sér í lagi ekki ef Kínverjar og ađrir austrćnir rođamaurar eru farnir af stađ. Ţví ef viđ höldum ekki vöku okkar gćti rauđa plánetan brátt fengiđ alveg nýja merkingu.

 
Númi Fannsker — Sálmur
 
Enter — Sálmur
 
Enter — Sálmur
 
Númi Fannsker — Sálmur
 
Númi Fannsker — Sálmur
 
Enter — Sálmur
 
Enter — Sálmur
 
        1, 2, 3 ... 180, 181, 182