Tilvitnun hefst (mbl.is):
"Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra, sagði á Alþingi í dag að hann fordæmdi loftárás Ísraelsmanna á Sýrland. Hann sagðist jafnframt skilja vel réttláta reiði Ísraelsmanna vegna sjálfsmorðsárásar í Haifa en teldi að það myndi ekki bæta um að ráðast inn í Sýrland[...] "Ég er sannfærður um að þessi árás inn í Sýrland hjálpar ekki til í þeim efnum [friðarumleitunum]".
Mikið erum við heppin að eiga slíkan speking sem Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra er. Hann fordæmir óforsvaranlegan verknað í einu orði og réttlætir hann í því næsta. Mikið verður nú gaman þegar þessi maður verður forsætisráðherra.
Svo er hann líka svona fjandi músíkalskur...