
Hvað er eiginlega með þennan páfa?
Á að láta karlræfilinn veslast upp fyrir augunum á manni?
Er ekki hægt að gefa greyinu frí, senda hann á heilsuhæli á einhverjum notalegum stað - finna handa honum góða konu sem passar upp á hann síðustu árin - líknardráp væri náttúrulega líka athugandi.
Þessar kardínáladulur hljóta að geta fundið einhvern í djobbið sem er ekki síslefandi eða fastur á dollunni þegar mikið liggur við.
Ef þá vantar mann þá er ég svo sem ekki að gera neitt sérstakt.
Mig langar að benda þeim sem íhuga nú hugsanlega aðild Íslands að Evrópusambandinu á að það eru ýmis önnur þjóðarsamtök sem koma til greina og myndu jafnvel henta Íslendingum betur en Evrópa.
Eitt af þeim eru Sameinuðu arabísku furstadæmin. Meðal þess sem þau hafa uppá að bjóða er ríkur menningararfur, öguð trúarbrögð, lágt verð á ávöxtum og kaffi ásamt greiðari aðgang að risavöxnum markaði fyrir sjávarafla okkar.
Þetta er einnig prýðilegt tækifæri fyrir íslenska ríkið til að skera á tengslin við Þjóðkirkjuna og stofna þess í stað íslenska Þjóðarmosku og ganga til liðs við þessi vinsælustu trúarbrögð heimsins, fyrst norðurlandaþjóða.