Forystugrein – Númi Fannsker
Númi Fannsker

Um helgina þurfti ég að hafa afskipti af lögreglunni, eða réttara sagt hafði lögreglan afskipti af mér þar sem ég þótti leika Sibelius full hátt á ókristilegum tíma. Ég get bara ekkert að því gert - Sibelius hjálpar mér að hugsa. Hinsvegar brá mér nokkuð í brún þegar tveir lögregluþjónar hringdu hjá mér bjöllunni á aðfararnótt sunnudags. Ekki að mér þætti einkennilegt að lögreglunni hafi borist kvörtun - það var í fullu samræmi við hljóðstyrk hljómflutningstækjanna og við vitum öll hvað Sibelius getur verið þreytandi til lengdar. Nei, það sem kom mér á óvart var sú hryggðarmynd sem blasti við mér þegar ég opnaði dyrnar. Tveir bólugrafnir unglingar á mittisúlpum með derhúfur. Illa girtir. Úlpurnar of stórar. Sá sem mælti fyrir þeim félögum spurði hvort ég væri húsráðandi. Röddin brothætt og nokkuð skræk.
Ég horfði nokkra stund á þessa polla á stigapallinum hjá mér og beið eftir setningunni: "Áttu dót á tombólu?" - en hún kom ekki. Því þarna voru mættir laganna verðir hvorki meira né minna. Fulltrúar réttlætisins - sjálft framkvæmdavaldið!

Er til of mikils mælst að lögregluþjónar beri með sér það vald sem þeim ber að framfylgja? Eru derhúfur og stuttar pokaúlpur einkennisklæðnaður sem kallar á virðingu samfélagsins?

Ég bauð drengjunum sleikibrjóstsykur - sem þeir afþökkuðu, stakk heyrnartólunum í samband og hélt áfram að hugsa.

Lesbók frá fyrri tíð

Hvaða mölúldni og maðkétni óþverri hefur eiginlega fengið að viðgangast í þessari bann- og skuldsettu Orkuveitu okkar? Fordæmalaus óráðsía, gegndarlaust fimbulsvínarí og linnulaust gleðispreð með almannafé.

Fussumfokkingssvei.

Ég legg hér með til og mæli um að eigendur þessa útmigna sandkassa helstu gæludýra borgaryfirvalda, reki alla oföldu orkuboltana öfuga út úr þessu bruðlhýsi án tafar og komið þeim fyrir í látlausu húsnæði annars staðar í borginni. Það er t.d. ágætis hús á horni Suðurlandsbrautar og Gernsásvegar, sem gæti hentað starfseminni fullkomnlega.

Orkuhreiðrinu mætti svo gjarnan breyta í leikskóla – með heimsins stærsta boltalandi í anddyrinu.

Enter 1/9/10
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
        1, 2, 3 ... 21, 22, 23, 24  
Þjóðbók
Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA