
Hvur er þessi ólukkupési sem prýðir forsíðu DV í gær? Fyrsti íslenski glæpamaðurinn sem hlýtur alþjóðlega frægð. Gera Íslendingar sér yfirhöfuð grein fyrir því að þeir hafa eignast alþjóðlegan glæpamann á heimsklassa? Það er ekki á hverjum degi sem sjálft Interpol lýsir eftir hverfisvillingnum úr Breiðholtinu - eða Hlíðunum eða guðmávitahvaðan. Þetta eru tíðindi, í sjálfu sér meiri tíðindi en brot það sem hans er leitað fyrir - smygl á tveimur tonnum af hassi til Túnis, ekki frá heldur til Túnis.
Ég vona að hann sleppi.
Svo er einhvur Slóbótan að kalla einn best liðna knattspyrnudómara landsins "hálfvita" á baksíðunni - ekki kannski besti leikurinn hjá knattspyrnumanni, eða hvað?
Dettur engum í hug að e.t.v. sé samhengi milli rafmagnsleysisins í Bandaríkjunum, Japan, Svíþjóð, Danmörku og Ítalíu? Hvarflar ekki að nokkrum manni að hér sé eitthvað vafasamt á seyði?
Hvar eru t.d. þeir heiðursmenn Osama bin Laden og Saddam Hussein Al Tigriti? Gæti nokkuð verið að þeir ráfi um heimsbyggðina og slái út "þjóðaröryggi" hér og þar?
Við skulum gæta okkar á því að láta ekki draga okkur á asnaeyrunum. Heimsöryggið er e.t.v. við það að vera slegið út svo Rafveitustjórinn Bush og litlu rafvirkjarnir hans geta náttúrulega ekki látið það fréttast að rafmagnseftirlitinu sé um að kenna.