Pistlingur – Enter
Enter

Jahá! - á nú að fara í boltaleik? Á nú að sperra sig og fara til útlanda, skreppa í smá víking? Á nú enn og aftur að hafa saklausa þjóðina að ginningarfífli og blábjána? Jahá, nú á sko að fara að spila handbolta - og sýna það - í sjónvarpinu mínu !
Viljum við í alvöru horfa á íslenska drengi verða að athlægi? drengi sem gætu hæglega setið á skólabekk og orðið gegnir þegnar. Er þess í stað nauðsynlegt að brjóta niður sálir þeirra í fæðingu og niðurlægja þá? Er það þarft - er það hinn sanni íþróttaandi?

Ég hatast við handbolta, ég blána og grána við tilhugsunina eina! Mér verður líkamlega illt, ómótt, flökurt og oftlega bubult þegar ég sé mann taka upp svo mikið sem appelsínu í stórmarkaði og munda hana. Ekki það að hreyfing sé af hinu illa - neinei, ég er hallur undir hvers kyns sprikl, innanhúss sem utan - en, elsku hjartans Íslands börn - við erum hér að tala um handbolta, íþrótt djöfulsins - knattleik kölska. Ekki nóg með að engin sómakær þjóð spili þennan viðbjóð af mannúðar- og siðferðishvötum - nei það sárnar mér ekki. Það sem ég aftur kyngi seint og illa...er að við getum andskotann ekkert í handbolta!!

Þið vitið kæru landar - eða ættuð að vita - að eina ástæðan fyrir því að þessi mygla þrífst innan íþróttaheimsins, eina lífsvon hennar - er sú að Íslendingar horfa á handbolta. Ó já, óhóhó jahá! Haldið þið að sjónvarpsréttur af EM í handbolta sé keyptur til margra landa? Er bitist, kýtt og klórað um þau forréttindi að sýna þetta skítkast, eins og ég leyfi mér stundum að kalla hroðann. Nei, Íslendingar eru eina þjóðin í gjörvöllum heiminum sem kaupir aðgang að þessum skrípaleik, aðrar þjóðir fá þetta gefins og sýna á undan barnaefni, gjarnan á miðvikudagsmorgnum.

Landsmenn - mér er svo hræðilega heitt í hamsi að ég verð að bindast orða. Ég vil bara biðja ykkur um eitt - og aðeins eitt. Slökkvið - í guðs bænum slökkvið!!!

Fréttir
Enter – 3/6/13
 
Númi Fannsker – 28/5/13
 
Útgáfa
Lesbók frá fyrri tíð

Iss. Er nú komið frost! Tungufestandi, nasaklemmandi brunafrost. Úff. Hver hefur gaman að frosti? Skautafífl dansa innandyra hvortsemer, ekki nenna þau að þvælast úti í skítakulda. Merkilegt. Fyrir hvern er þetta andskotans frost eiginlega?

Um rigningu segir maður: „ tjah, hún er svo góð fyrir gróðurinn“, en hvurn fjandann segir maður um frost? Fyrir hvað er frostið gott? Ekki gróðurinn. Ekki dýrin. Ekki fólkið. Fjandakornið ekki mig. Það líður engum betur í frosti. Það er til einskis. Ónýtt. Drasl.

Gigtarsjúklingar fá í mjaðmir, gamlingjar húrra á hausinn, bílar klessa hver á annan. Þetta fjárans frost er ekki bara kalt, óþægilegt og leiðinlegt, það er líka dýrt - þjóðhagslega óhagkvæmt.

Burt með það, segi ég. Sá frambjóðandi í komandi borgarstjórnarkosningum sem getur lofað mér frostlausri Reykjavík árið 2006 fær mitt attkvæði. Og minna.

Númi Fannsker 2/11/05
Spesi – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Dr. Herbert – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Spesi – Forystugrein
 
Kaktuz – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Fannar Númason Fannsker – Forystugrein
 
Myglar – Forystugrein
 
Spesi – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Fannar Númason Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Fannar Númason Fannsker – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Spesi – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
     1, 2, 3, 4, 5, 6  
Þjóðbók
Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA