Forystugrein – Enter
Enter

Úff, ţá er allt ađ fara til andskotans hjá J-Lo og Affleck - og hinn ređurglađi Ethan Hawke og yndisblómstriđ hún Uma eiga enn í ógnarbasli - og almáttugur, hún Birgitta okkar og dúllan hann Hanni bara hćtt saman - og vesalings Beckhamkríliđ bara komiđ međ gat á hausinn - seiseijá og gamli eiturefnabelgurinn Charlie Sheen bara ađ verđa pabbi međ henni Denise sinni og sko Madonnu! ekki nóg međ ađ hún sé ađ slefa upp í blessunina hana Britney, heldur er hún líka búin ađ lćra alla stafina...

VILJIĐ ŢIĐ HĆTTA AĐ SEGJA MÉR FRÁ ŢESSUM HLUTUM!

Mér er sama ţótt bretadrottning haldi framhjá Ricky Martin međ fílamanninum - ég vil ekki vita ţessa hluti.

Hlífiđ mér viđ ţessu eilífa samfélagsryksogi og ţessum skrumskćlda blöđrublćstri. Mér kemur ţetta andskotakorniđ ekkert viđ.

Lesbók frá fyrri tíđ

Skelfing ţreytir mig ţetta eilíflega sífr og vćl um viđskipti sínkt og heilagt.

Allt síđasta ár héldu menn hvorki vatni né vindi yfir útrás og sjóđaúttútnun, kaupdirfsku og góđćri; hlaunspikuđum endurskođendum og yfirgreiddum maurapúkum var hyglt í hverju horni og ţeim klínt á forsíđur glans- og glassúrrita hverskonar. Allt hverfđist um hina síđrómantísku hagfrćđimenntuđu, feitfingruđu víkinga og verđbréfin ţeirra.

Drepleiđinlegt öllum ţeim sem hvorki ţyrsti í pönnukökusjónvarp né ređur­framlengjandi innanbćjarskriđdreka.

Og ekki skánar ţađ.

Nú dembast yfir okkur hryllingssögur af gírugum og illa innrćttum hrekkjusvínum sem vilja stjaksetja nćrsýnu víkingakrúttin okkar. Bréf hrynja, bankar tapa. Ólíklegustu vísitölur taka dýfur og orđskripildi í líkingu viđ verđbólgu­skeiđar og -skot lćđa sér inn í orđfćri felmtri sleginna stjórn­spekinga, sem engin ráđ eiga viđ ţessari ómaklegu gagnárás erlends bókhalds­herafla á varnarlaust ofvirkjađ land norđur í íshafi.

Sama er mér. Ég nenni ekki ađ hlusta á svona vćl. Ţađ er ađ koma sumar og lóan er sest í haga, flensufrí. Ég á mér engin niđursođin verđbréf til ađ svitna yfir, engin greiđsludreifđ hornbađkör. Enga niđur­halandi bíósali undir rjáfri.

Ţiđ hin getiđ bara trođiđ góđćrinu upp í tambórínuna á ykur.

Gleđilegt sumar.

Númi Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
        1, 2, 3 ... 21, 22, 23, 24  
Ţjóđbók
Baggalútur er hýstur af alúđ og umhyggju hjá ADVANIA