
Á morgun tökum viđ Íslendingar á móti Ţjóđverjum í landsleik í knattspyrnu. Í fyrsta skipti í knattspyrnusögunni eiga Íslendingar raunhćfa möguleika á ţví ađ komast í lokakeppni Evrópumótsins. Ţýska liđiđ er í sögulegri lćgđ, og ţrátt fyrir tvö niđurlćgjandi töp fyrir Skotum, eygja strákarnir okkar enn möguleika á efsta sćti riđilsins.
Ţađ er tími til kominn ađ Íslenska landsliđiđ setji sér háleit markmiđ. Tilgangurinn međ ţví ađ taka ţátt hlýtur ađ vera ađ sigra. Ţađ man enginn hver varđ í öđru sćti, jafntefli eđa tap er alltaf óásćttanlegt. Bagglútur fagnar ráđningu nýrra landsliđsţjálfara sem bersýnilega stefna hátt.
Styđjum vel viđ bakiđ á strákunum á morgun, tökum kröftuglega undir í ţjóđsöngnum og sýnum Ţjóđverjunum hvar Davíđ keypti öliđ. Áfram Ísland.
Enn eitt Baggalútsáriđ er hafiđ, nánar tiltekiđ ţađ níunda. Ţetta starfsár Baggalúts verđur sjálfsagt nokkuđ frábrugđiđ hinum átta - einkum vegna ţess ađ aldrei hafa janfmargir gert jafnógurlega í jafnstórar brćkur á jafnskömmum tíma, međ jafngeigvćnlegum afleiđingum. Ţađ mćđir ţví mikiđ á harđsnúnu fréttaliđi Baggalúts, sem freistar einskis í bođun hins helga erindis endanlegs sannleika.
Lifi sannleikurinn!
P.s. Hin svokallađa „hljómsveit Baggalúts“ hefur sent frá sér enn eina plötuna. Ţessi er kölluđ Sólskiniđ í Dakóta og á henni flytja mishćfileikaríkir tónlistarmenn vćmna ćttjarđarslagara eftir sjálfa sig og íslensk-amerísk skáld. Kaupiđ eintak.