Lesbók29.08.03 — Númi Fannsker

Vesalings Ingibjörg Sólrún. Hún er sífellt að "hugsa málið" og "meta stöðuna". Hversvegna er konutuskan ekki látin í friði? Hvurn fjandann kemur það fólki við hvort hún hyggst bjóða sig fram til formanns Samfylkingarinnar nú, seinna eða aldrei? Það er eins og jafnvægi alheimsins standi og falli með "ákvörðun Ingibjargar". Ég er a.m.k. orðinn þreyttur á því að vera lon og don að bíða eftir Ingibjörgu og ég er viss um að hún er sjálf búin að fá nóg þessum endalausu, ósanngjörnu væntingum og kröfum. Hún er nú einu sinni bara sagnfræðingur í Vesturbænum - í guðanna bænum látið konuræfilinn í friði!

Aumingja konan.

 
Númi Fannsker — Sálmur
 
Enter — Sálmur
 
Enter — Sálmur
 
Númi Fannsker — Sálmur
 
Númi Fannsker — Sálmur
 
Enter — Sálmur
 
Enter — Sálmur
 
        1, 2, 3 ... 180, 181, 182