Forystugrein – Númi Fannsker
Númi Fannsker

Sjávarútvegsráðherra Breta hefur nú opnað á sér kjammann til að ata íslenska þjóð auri og hvetur nú hvern sem vettlingi veldur að sniðganga allt sem íslenskt getur talist. Þetta gerir maður sem situr í ríkisstjórn sem nýlega sendi 42.000 menn í stríð sem háð var á fölskum forsendum. Þetta gerir maður sem stjórnar landi sem rekur 33 kjarnorkuver og notar kol til að fullnægja helmingi orkuþarfar sinnar. Þetta gerir maður sem stýrir sjávarútvegsmálum þjóðar sem er búin að þurrka upp alla nytjastofna sína...

Ég hvet ALLA til að sniðganga breskar vörur með öllu, heimsækja ekki Bretland og slökkva á sjónvarpinu þegar breskir þættir eru sýndir - meira að segja Taggart.

Lesbók frá fyrri tíð

Elsku Dolly mín.

Fyrirgefðu hvað ég skrifa sjaldan. Mér datt þú í hug í morgun þegar ég vaknaði í morgun með lagið ykkar Kennys um eyjarnir í straumnum, það fallega lag, á heilanum.

Ég fór þegar að hugsa um hvað þú værir að bardúsa núna og sá á heimasíðunni þinni að þú ert ennþá að syngja og skemmta - alltaf jafn dugleg. Mikið væri nú gaman að sjá þig skemmta í kólóseuminu í Vegas þann 7. desember. Og veistu, hver veit nema maður bara skelli sér. Það verður sko enginn svikinn af að sjá þig á sviði.

Ég man eins og það hefði gerst í gær þegar ég sá þig fyrst - í Texas '79. Manstu? Ég, Íslendingurinn, stóð þarna bísperrtur við sviðið með spánnýjan kúrekahatt og flunkunýtt efrivararskegg, eilítið snúið til endanna og starði hugfanginn á þig. Hvílík rödd! Hvílík útgeislun! Hvílíkur barmur!

Og svo blikkaðirðu mig. Með þessum ógnarlöngu svarbláu augnhárum. Og brostir - þessu brosi sem heimsbyggðin öll ann og þarfnast svo mjög. Og í einu vetfangi var ég þinn.

Við hittumst alltof sjaldan núorðið Dolly mín - og mér þykir það miður, en það hefur verið svo ósköp mikið að gera hjá mér undanfarið. Ég vona samt að þú sért ekki búinn að gleyma mér. Dyr mínar standa þér alltaf opnar, eigir þú einhvern tíman leið um Vesturbæinn.

Kær kveðja frá öllum á Íslandi.
Þinn að eilífu,
Enter.

Númi Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
        1, 2, 3 ... 21, 22, 23, 24  
Þjóðbók
Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA