Mikið eru þeir nú duglegir að kaupa hverskyns þjónustu af sjálfum sér suður í Leifsstöð. Einn stjórnarmaður hafði þegið 13 milljónir fyrir störf sem að umtalsverðum hluta teljast sem hefðbundin stjórnarstörf að mati Ríkisendurskoðunar.
Svo eru þeir afskaplega gjafmildir því þeir vita að æ sér gjöf til gjalda og 200.000 kall hér þýðir nefnilega 200.000 kall þar.
Þetta er fjórða hneykslið af nákvæmlega þessari tegund á stuttum tíma. Einhverjir hausar hafa reyndar fokið - en ekki allir.
Asnar.