Hvaða flokkur er það sem hefur auglýst á Baggalúti síðustu vikur?
Ég skal gefa ykkur vísbendingu: Það er flokkur sem trúir á frelsi einstaklingsins og bókstaflega elskar framkvæmdir af öllum stærðum og gerðum (sérstaklega þó þær risastóru).
Nei, það ekki Sjálfstæðisflokkurinn.
Ég skal gefa ykkur aðra vísbendingu: Það er flokkur sem vill að ríkið afli sem mests fjár svo hægt sé að halda úti öflugu velferðarkerfi. Hann vill lága skatta, en ekki svo lága að það bitni á velferðarkerfinu.
Nei, það eru ekki Vinstri-Grænir.
Síðasta vísbending: Það er flokkur sem dregur hvaða ríkisstjórn sem hann tekur þátt í í átt til hófsemi og burt frá öfgum til vinstri eða hægri. Það er flokkur sem hefur sterkan, hófsaman leiðtoga sem er búinn að vera einn vinsælasti stjórnmálamaður landsins í fjölda ára.
Neineinei, það er ekki Samfylkingin, ertu eitthvað verri?
Það er FRAMSÓKNARFLOKKURINN.