Pistlingur – Spesi
Spesi

Senn líður að kosningadegi. Þegar hann gengur í garð er jafnan gott að hafa mótað sér skoðun á þeim framboðum sem í boði eru svo ekki sé staðið á gati í kjörklefanum. Þá er jafnan talið æskilegt að kjósandinn hafi komist að þeirri niðurstöðu að honum þyki einn flokkur öðrum fremri í að sinna hagsmunum sínum og merki hann því X við listabókstaf þess flokks á kjörseðlinum. Til að svo geti verið er ekki svo galið að eitthvað sé um frambærilega flokka í framboði. Og það er nú það.

Um þessar mundir er enginn - ég endurtek - ekki nokkur einasti almennilegur flokkur, né einstaklingur, í framboði. Þetta er alveg með ólíkindum! Hvað varð um öll gömlu góðu framboðin sem lofuðu ekki alltaf því sama og öll hin, heldur beittu frumleika og dirfsku við mótun stefnuskrár sinnar? Hvar er til dæmis Vinstri, hægri snú nú? Hvar eru menn eins og Ástþór Magnússon og Rafn Geirdal þegar við þurfum á þeim að halda? Hvaða flokkur hefur til dæmis minnst eitthvað á að Ísland leggi undir sig Færeyjar, nú eða þá hvenær muni hér Íslandi rísa stjörnusambandsstöð? Ekki nokkur!

Kæru landsmenn: Að ganga til kosninga eins og nú er í pottinn búið er alger firra. Enginn þeirra flokka sem býður sig fram að þessu sinni kemst nálægt því að vera samboðinn mér né öðrum virðulegum kjósendum. Því legg ég til að landsmenn allir skili auðu í kosningunum á morgun. Ef við leggjumst öll á eitt mun ekkert framboðanna hljóta atkvæði. Þá verður efnt til kosninga að nýju og gæti það orðið til þess að upp spretti framboð sem veita kjósendum alvöru valkosti og alvöru umræðu, en ekki þetta eilífa hjal um skattalækkanir, heilbrigðisþjónustu og sjávarútveg. Hverjum er ekki sama um það?

X-ekkert!

Fréttir
Númi Fannsker – 16/5/13
 
Enter – 13/5/13
 
Útgáfa
Lesbók frá fyrri tíð

Miðar á jólatónleika Baggalúts hafa runnið út eins og sólarvörn í júlí á Bora Bora. Þegar er orðið uppselt á tvenna tónleika í Háskólabíói, 1. og 16. desember og miðabunkinn á tónleika í Hofi 23. nóvember þynnist hratt. Vegna fjölda áskorana og hugheils jólaanda meðal sveitunga jólasveitar Baggalúts, hefur verið ákveðið að blása til aukajólatónleika í Háskólabíói, laugardaginn 15. desember kl. 21. Miðasala hefst á midi.is kl. 10 á mánudagsmorgun. Vinsamlegast fjölmennið.

Fréttavefur úr fríi

Vefurinn baggalútur.is hefur verið opnaður eftir óralangt og drepleiðinlegt sumarfrí. Mun ritstjórn Baggalúts í framhaldinu taka til óspilltra málanna og einbeita sér að hárbeittri fréttamiðlun, samhliða öðrum fyrirliggjandi verkefnum á borð við stofnun samyrkjubús, skipulagningu Nýalshátíðar í Hörpu, opnun alþjóðlegrar kóbaltmiðlunar í Vatnsmýri og fleira og fleira.

Lifi sannleikurinn!

Númi Fannsker 23/9/12
Spesi – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Dr. Herbert – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Spesi – Forystugrein
 
Kaktuz – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Fannar Númason Fannsker – Forystugrein
 
Myglar – Forystugrein
 
Spesi – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Fannar Númason Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Fannar Númason Fannsker – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Spesi – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
     1, 2, 3, 4, 5, 6  
Þjóðbók
Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA