Pistlingur – Spesi
Spesi

Senn líður að kosningadegi. Þegar hann gengur í garð er jafnan gott að hafa mótað sér skoðun á þeim framboðum sem í boði eru svo ekki sé staðið á gati í kjörklefanum. Þá er jafnan talið æskilegt að kjósandinn hafi komist að þeirri niðurstöðu að honum þyki einn flokkur öðrum fremri í að sinna hagsmunum sínum og merki hann því X við listabókstaf þess flokks á kjörseðlinum. Til að svo geti verið er ekki svo galið að eitthvað sé um frambærilega flokka í framboði. Og það er nú það.

Um þessar mundir er enginn - ég endurtek - ekki nokkur einasti almennilegur flokkur, né einstaklingur, í framboði. Þetta er alveg með ólíkindum! Hvað varð um öll gömlu góðu framboðin sem lofuðu ekki alltaf því sama og öll hin, heldur beittu frumleika og dirfsku við mótun stefnuskrár sinnar? Hvar er til dæmis Vinstri, hægri snú nú? Hvar eru menn eins og Ástþór Magnússon og Rafn Geirdal þegar við þurfum á þeim að halda? Hvaða flokkur hefur til dæmis minnst eitthvað á að Ísland leggi undir sig Færeyjar, nú eða þá hvenær muni hér Íslandi rísa stjörnusambandsstöð? Ekki nokkur!

Kæru landsmenn: Að ganga til kosninga eins og nú er í pottinn búið er alger firra. Enginn þeirra flokka sem býður sig fram að þessu sinni kemst nálægt því að vera samboðinn mér né öðrum virðulegum kjósendum. Því legg ég til að landsmenn allir skili auðu í kosningunum á morgun. Ef við leggjumst öll á eitt mun ekkert framboðanna hljóta atkvæði. Þá verður efnt til kosninga að nýju og gæti það orðið til þess að upp spretti framboð sem veita kjósendum alvöru valkosti og alvöru umræðu, en ekki þetta eilífa hjal um skattalækkanir, heilbrigðisþjónustu og sjávarútveg. Hverjum er ekki sama um það?

X-ekkert!

Lesbók frá fyrri tíð

Mér þykir rétt að drepa hér á nokkrum vinsælum umfjöllunarefnum, lauslega.

Evran.
Við höfum andskotakornið ekkert með þessa Evru að gera. Við eigum bara að drulluháleistast til að fara almennilega með krónuna okkar og sýna henni tilhlýðilega virðingu.

Hlutabréf.
Hverjum er ekki sama þó þessi útúrsnýttu bréfsnifsi fuðri upp? Þetta er mjög einfalt. Ef eitthvað er ekki til í alvörunni – ekki kaupa það.

Viðskiptafréttir.
Var ekki passlegt að hafa þetta allt á leiðinlegu síðunni í Mogganum? Æ, þið vitið, þessari þarna rétt aftan við miðju.

DeCode.
Af hverju fær Kári ekki bara huggulegan kontór í einhveri háskólabyggingunni með sæmilegri tölvu og stórum hörðum diski? Þarf virkilega að flækja málið svona?

Styttur.
Því fleiri styttur, því betra. En erum við í alvöru ekki komin lengra en að Tómasi Guðmundssyni? Og var hann ekki búinn? Kommon. Hvar er Jón Páll? Kiljan? Hvar er moðerfokking Ríó Tríó?

Ásdís Rán.
Er ekki hægt að hafa hana einhvers staðar í beinni? Ég verð bara að vita meira um hana.

Borgarfulltrúar.
Hér í eina tíð hefði ég ekki getað nefnt einn einasta borgarfulltrúa með nafni. Nú er smetti hvers eins og einasta þeirra greypt inn í heilabörkinn á mér. Þið eruð borgarstarfsmenn – ekki fyrirsætur.

Kreppan.
Mér býður við fólki, kjagandi í eigin spiki upp í raðgreidda jeppann sinn með útbelgda poka af sætindum og ropvatni til að sturta í sig og sína yfir heiladeyfandi pönnukökuskjánum sínum, sem dirfist að taka sér þetta orð í munn.

Bankarnir.
Hvaða fáskrúðsfirra er það að bankarnir eigi að vera góðir og tillitssamir? Síðan hvenær? Bankar eru vondar, gráðugar, valdasjúkar blóðsugur með það eitt að markmiði að græða peninga. Að búast við öðru er barnalegt.

Eimskip.
Það er algerlega ólíðandi að fara svona með sjálft akkeri íslenska lýðveldisins. Þeir sem eru ábyrgir ættu að vera kjöldregnir. Ítrekað.

Virkjanir.
Stífla allt helvítis draslið. Stíflur eru töff. Mosi síður.

Okrið.
Hættið að kaupa allt þetta fokdýra drasl, bjánarnir ykkar. Í guðanna bænum. Hættið að kaupa!

Spesi – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Dr. Herbert – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Spesi – Forystugrein
 
Kaktuz – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Fannar Númason Fannsker – Forystugrein
 
Myglar – Forystugrein
 
Spesi – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Fannar Númason Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Fannar Númason Fannsker – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Spesi – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
     1, 2, 3, 4, 5, 6  
Þjóðbók
Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA