Pistlingur – Fannar Númason Fannsker
Fannar Númason Fannsker

Eins og margsinnis hefur komiđ fram í pistlum mínum á ţessum vettvangi er ég mađur limafagur og tignarlegur í fasi. Ég er ávallt vel til hafđur og snyrtilegur í hvívetna. Ađ auki hefi ég tamiđ mér kurteisi og góđa mannasiđi í samskiptum mínum viđ fólk. Slíkir mannkostir eru ekki sjálfsagđir og ég legg metnađ minn í ađ stunda líkamsrćkt, borđa hollan mat o.s.frv.

Ein grundvallarstođ snyrtimennskunnar er regluleg og ábyrg hárhirđa. Sjálfur fer ég í klippingu á tveggja vikna fresti, sem jafnvel er of langur tími, sérstaklega ef mikiđ er um ađ vera í samkvćmislífinu.

Í dag fór ég sumsé í klippingu. Ég er vanur ađ fara ćtíđ á sama stađ en ákvađ í dag, ţar sem voriđ virđist komiđ og ţví hlaupinn í mig nokkur galsi, ađ breyta til og prófa nýja stofu.
Um leiđ og ég sté inn á stofuna tók á móti mér afar sjarmerandi stúlka. Sú var óađfinnanlega klippt, bein í baki, stimamjúk og ţokkafull. Hún vísađi mér til sćtis viđ höfuđţvottafont og fór mjúkum höndum um hnakka og hvirfil ţegar hún kom höfđi mínu fyrir í fontinum. Hófst ţá ţvotturinn.

Ţar sem stúlkan gćldi viđ hársvörđ minn og strauk mér um höfuđiđ fylltist ég skyndilegri kćrleikstilfinningu. Mig langađi ađ taka ţessa gyđju hárhirđunnar í fang mér og gráta sćtum kćrleikstárum viđ ţéttan barm hennar. Langađi ađ nema hana á brott og eyđa eilífđinni međ hendur hennar í blautu, sápuhálu hári mínu.
Ţegar á leiđ ţvottinn breyttist tilfinningin úr barnslegum kćrleik í afar munúđarfulla erótíska upplifun sem magnađist eftir ţví sem seytliđ í vatninu varđ hávćrara. Ţegar stúlkan skrúfađi fyrir ćpti ég upp yfir mig: "Ekki hćtta! Ég elska ţig! Lof mér ađ nema ţig á brott og njóta ţinna mjúku fingra ađ eilífu!"

Ég endađ náttúrulega á minni venjulegu hárgreiđslustofu međ sprungna vör - en hreint hár.

Lesbók frá fyrri tíđ

Hvađ í grćngolandi gallblöđru andskotans á ţađ ađ fyrirstilla ađ klemma saman annan hvern dagskrárliđ í sjónvarpinu mínu? Vesalings offeiti, rassíđi túbuskjárinn minn er meira og minna svartbröndóttur öll kvöld.

Ţeđ er ekki nóg međ ađ mađur sé međ blússandi minnimáttarkennd gagnvart greiđsludreifđu, krossfestu pönnukökuskjánum sem fylla allar stofur - heldur á nú líka ađ skafa upp og ofan af dagskránni hjá ţessum fáu vesalingum sem enn sápa í sér heilann međ túbufrođunni.

Ćtli mađur fái afslátt af afnotagjöldunum í samrćmi viđ ţessa villimannslegu sjónskerđingu?

Eđa á mađur bara ađ sćtta sig viđ ţetta, sem sjálfsagđan hluta af blessađi kreppunni?

Spesi – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Dr. Herbert – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Spesi – Forystugrein
 
Kaktuz – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Fannar Númason Fannsker – Forystugrein
 
Myglar – Forystugrein
 
Spesi – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Fannar Númason Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Fannar Númason Fannsker – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Spesi – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
     1, 2, 3, 4, 5, 6  
Ţjóđbók
Baggalútur er hýstur af alúđ og umhyggju hjá ADVANIA