Lesbók05.04.03 — Númi Fannsker

Við Myglar brugðum okkur í kvennabælið Hlaðvarpann í gærkvöldi, þar sem færeyska söngkonan Eivör Pálsdóttir tróð upp ásamt þremur kunningjum sínum.

Við innganginn sátu tvær stúlkur og gættu skókassa, fullum af peningaseðlum og kröfðu þær okkur um 1.500 krónur, sem ég snaraði fram - enda ávallt með reiðufé á mér. Myglar greiddi stúlkunum í tíu króna mynt, búinn að nurla fyrir miða í þrjá mánuði. Við fengum okkur öl (650 kr. glasið) og sæti (0 kr.).

Húsið var fullt og því margt um manninn. Mátti meðal annarra kenna þar þekkta rithöfunda, hljómlistarmenn og kvikmyndagerðarmenn.

Hófust þá tónleikar.
Guð minn góður, hvílíkir tónleikar! Eivör Pálsdóttir stóð eins og færeyskur engill á sviðinu og heillaði hvern einasta gest með stórkostlegum söng, hörpuslætti og töfrandi framkomu. Við Myglar sátum sem þrumulostnir - það var ekki nokkur leið að hafa augu eða eyru af þessari dásemdaveru sem hafði alla hljómleikagesti algerlega á sínu valdi.

Lögin voru ýmist frumsamin ellegar útfærsla færeyskra þjóðlaga og rímna. Einnig söng Eivör fáein íslensk lög, og bar hæst túlkun hennar á 'Sofðu unga ástin mín', við alltof sjaldheyrt lag Björgvins Guðmundssonar. Ég átti í mesta basli við að berjast við tárin og get ímyndað mér að sú sæla sem fyllti hjarta mitt og sál þar sem ég sat og hlýddi á þetta syngjandi guðslamb, hafi einna helst verið í ætt við trúarlega alsælu frelsaðs manns.

Kunningjar Eivarar stóðu sig sæmilega, held ég - annars tók ég ósköp lítið eftir þeim.

 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Dagbók
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Enter — Forystugrein
 
        1, 2, 3, 4 ... 180, 181, 182