Lesbók02.04.03 — Númi Fannsker

Á dögunum greiddi ég 800 krónur til að horfa á félagslega raundramað um Manpúkann (e. Daredevil). Púki þessi verður fyrir því óhappi sem barn að yfir hann skvettist geislavirkur úrgangur sem sullast í augu hans og veldur einhverskonar skammhlaupi í heilanum. Drengurinn missir sumsé sjónina, en önnur skynfæri magnast svo mjög að hann fer að sjá með eyrunum - sem er stórmerkilegt út af fyrir sig.

Stórkostlegt var að sjá hvernig blindi drengurinn, öryrkinn, reif sig upp úr vesældómnum með iðkun leikfimi og neyslu heilsusamlegs fæðis. Á fáum árum var hann orðinn hraustari en skyggnustu vígamenn og lumbraði á þrjótum og fúlmennum sér til skemmtunar á kvöldin. Hækjan hans - blindrastafurinn - varð honum að öflugu vopni og gaman var að fylgjast með því hvernig maður sem hafði alla burði til að verða félagslegt vandamál sigraðist á fötlun sinni og notaði hana öllu mannkyninu til góða! Sannarlega góð fyrirmynd fyrir unga öryrkja.

Þrátt fyrir að myndin sé að vissu leyti raunfélagslegt meistaraverk, er á henni nokkuð stór galli; hún er drepleiðinleg. Handritið er rusl og leikurinn hlægilegur. En það verður víst ekki á allt kosið.

 
Enter — Sálmur
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Enter — Forystugrein
 
        1, 2, 3, ... 180, 181, 182