
Sit ég nú sćll og glađur, mettur. Sáttur. Enn eitt áriđ hefur skotist framundan rúmstokki eilífđarinnar og horfiđ út um gluggatýruna í rjáfrinu.Án ţess svo mikiđ sem kveđja.
Eftir sit ég međ servíettu í hálsmáli og sósudreitil í munnviki, búinn ađ innbyrđa ţađ sem ađ mér var rétt, súrt og sćtt. Áriđ var mér ađ mestu ljúft, ég var heill heilsu og samskipti mín viđ náungann voru, međ fáum undantekningum, gefandi og vinsamleg. Ég eignađist fáa óvini og missti lítiđ úr aski vináttunnar. Ég gat sinnt ritstörfum af meiri alúđ en oft áđur, og ég fékk blessunarlega tćkifćritil ađ skrifa af fullum krafti fyrir minn elskađa Baggalút.
Einhverjir skuggar lćddust ţó međfram og sleiktu skósóla mína, reyndu ađ bregđa fyrirmig fćti og draga mig til sín, lćstu jafnvel krumlum um sterklega ökkla mína og toguđu - en allt fyrir ekki. Ég stóđ fastur fyrir og horfđi ćtíđ beint af augum. Hérer óţarfi ađ tína til hvađa illu öfl leyndust í ţessum skuggum, ég lćt mér nćgja ađ ýja og ympra en lćt ykkur eftir ađ geta - en ég stend heill eftir, keikur. Sáttur.
Já, góđir Íslendingar. Viđ erum heillagripir. Međ heillegar tennur, góđa húđ og öflugt, heilbrigt stjórnkerfi. Viđ eigum okkur fagra og upplitsdjarfa leiđtoga, indćla íţróttagarpa,óbilgjarnar 'popular' hetjur og mörg falleg dýr.
Hvert orđ sem fellur af okkar ósprungnu vörum breytist og óđara í gull, aldrei má gleymaađ íslensk tunga er uppspretta, hrein lind - merkasta umgjörđ skýrra hugsanna sem mannkyn hefur eignast. Okkar sterkasta vopn gegn uppgangi skrćlingja og barbara, sem međólćsi og svartagaldri ógna vísindalegri, gagnrýnni og fagurri hugsýn. Ég mun ekki draga ţćr illu kanínur upp úr hattkúfi hér, en lćt nćgja ađ minnast á óţolandi athćfi og yfirgang Hollendinga á alţjóđavettvangi á árinu.
Ég sit hér sćll, eins og áđur sagđi, og ég hef ekki ástćđu til ađ klaga upp á neinn. Ég óska komandi ári, árum, alls góđs og vona ađ ţau fćri okkur kćti og góđan friđ.
Ykkur árna ég góđra stunda og farsćldar um alla framtíđ.
140 milljónir? Er ţađ allt?
Eru 140 milljónir virkilega allt ţađ sem ríkisstjórn Íslands getur séđ af til sauđfjárbćnda, eftir allt sem á undan er gengiđ? Er ríkisstjórnin búin ađ gleyma hverjir ţađ eru sem hafa haldiđ lífinu í Íslendingum síđustu aldirnar?
Ţessi smánarlega ölmusa er auđvitađ hneisa og til skammar fyrir alla ţjóđina. Og ţađ er líka til skammar ţegar menn tala um ađ sauđfjárbćndur (sem og ađrir bćndur) eigi ađ "framleiđa fyrir markađinn" og halda ţví fram ađ ef ţeir geti ekki selt framleiđsluvörur sínar eigi ţeir "bara ađ fara á hausinn".
Sauđfjárbćndur eiga ađ framleiđa kjötiđ, ekki markađssetja ţađ! Ţađ er ríkisstjórnin sem á ađ sjá til ţess ađ ţađ sé markađur fyrir framleiđsluvörur íslenskra bćnda, ţví ţađ er ţjóđinni allri til hagsbóta.
En ríkisstjórnin sinnir ekki ţeirri skyldu sinni. Ţvert á móti hleypir hún allskyns stađgönguvörum kindakjöts inn í landiđ međ allt of lágum tollum og vörugjöldum og horfir ađgerđalaus á neysluvenjur ţjóđarinnar breytast í átt ađ 100% skyndibita- og pizzuáti.
140 milljónir. Gjöriđi svo vel. Og svo getiđi bara flutt í bćinn og pantađ ykkur Dómínós.