Lesbók08.03.03 — Númi Fannsker

Ekki fer ég oft í kvikmyndahús, þó stundum þegar sérlega áhugaverðar kvikmyndir eru til sýnis - t.d. á kvikmyndahátíðum eins og þeirri norrænu sem nú stendur yfir í Háskólabíói. Þar er sýnd kvikmyndin Mies vailla menneisyyttä (Maður án fortíðar), eftir finnska mannvininn og snillinginn Aka Kaurismaka. Aki þessi á að baki kvikmyndir eins og Juha, Kauas pilvet karkaavat, Pidä huivista kiinni, Tatjana og Leningrad Cowboys.

Nokkuð fjölmenni var á sýningu myndarinnar í gærkvöldi klukkan 22, þó þurfti ég ekki að standa í röð til að kaupa mér poppkorn, né við inngöngu í salinn - slíkt ber að þakka. Hins vegar fóru drunurnar úr samliggjandi sal óskaplega í taugarnar á mér, þar sem engu var líkara en stórvirkar, pústlausar vinnuvélar væru að brjóta salinn niður. Einnig þykir mér fráleitt á kvikmynd sem þessari að brjóta hana upp í miðju gullfallegu atriði svo gestir geti keypt sér meira popp!

Kvikmyndin sjálf var hin besta - uppfull af mannúð, húmor og þeirri drungalegu en um leið einföldu heimspeki sem einkennir svo marga Finna, sérstaklega téðan Aka.
Leikur var prýðilegur og finnska er ákaflega fallegt tungumál sem rennur án strits og lætur vel í eyrum.

Þó er ljótt, ef satt er, hversu aumar aðstæður sumir Helsinkibúar lifa við - en Kaurismaki sýnir að jafnvel hinir aumustu eiga von um betra líf og fegurðin leynist oft á ólíklegustu stöðum, jafnvel í ryðguðum gámum við höfnina.

Húrra fyrir Aka Kaurismaka, húrra fyrir Háskólabíói, húrra!

 
Kaktuz — Saga
 
Kaktuz — Sálmur
 
Númi Fannsker — Sálmur
 
Fannar Númason Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Sálmur
 
Enter — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
        1, 2, 3 ... , 180, 181, 182