Pistlingur – Númi Fannsker
Númi Fannsker

Ljótur er sá ósiður ýmissa sjálfskipaðra samfélagsgæslumanna að hnýsast í launakjör náunga sinna. Á dögunum voru launakjör forstjóra alþjóðlegs banka- og fjármálafyrirtækis, Kaupþings, úthrópuð á fórnarstöllum fjölmiðlanna - eins og umræddur forstjóri væri siðlaus fjárglæframaður. Í kjölfarið tóku hinir og þessir apakettir að fárast yfir þeim greiðslum sem forstjórinn fékk á síðasta ári, eins og um var samið.

Hvurn andskotann kemur það okkur við hvað forstjóri Kaupþings er með í laun? Maðurinn semur við sína yfirboðara um tilteknar greiðslur fyrir tiltekin störf, eins og allir launþegar á hinum frjálsa atvinnumarkaði. Væri hér um ríkisbanka að ræða, lægi málið öðruvísi við, þar sem himinhá þjónustu- og vaxtagjöld plaga viðskiptavini þeirra og þyrfti því að réttlæta slíkar greiðslur á kostnað hins almenna neytanda og skattborgara. Þóknist viðskiptavinum Kaupþings ekki laun forstjórans eiga þeir að leita til annarra fyrirtækja. Þóknist stjórn Kaupþings ekki laun forstjórans á hún að reka hann og ráða aftur í starfið á öðrum forsendum.

Vissulega er forstjóri Kaupþings með há laun. Það eru allir sammála um - en hann borgar þó skatta af sínum launum,ólíkt fjölmörgum öðrum, skatta sem árlega duga til að reka meðalstórt bókasafn - kaffiterían innifalin!

Lesbók frá fyrri tíð

Hvað er bjánalegra en keppnisíþróttir? Hvað er heimskulegra en að keppa um hver getur hlaupið hraðast, stokkið hæst og hoppað lengst? Það vita allir hvort sem er að sá sem stekkur hæst tekur sennilega sömu, eða svipuð, lyf og sá sem hleypur hraðast. Og sá sem hoppar lengst bryður kannski spánný lyf sem greinast ekki við hefðbundið lyfjaeftirlit, eða bara sömu lyf og sá sem stekkur hæst og hleypur hraðast.

Til hvers í blásanseruðum andskotanum erum við að rembast þetta?
Jújú, fólk hleypur hratt - gott og vel, hverjum er ekki sama? Seiseijú, sumir stökkva hátt - og hvað með það? Já biddu fyrir þér, til eru þeir sem hoppa langt, jafnvel lengra en aðrir - sama er mér.

Í guðanna bænum verið ekki að bera þetta á borð fyrir heilbrigt fólk - gerið þetta bara heima hjá ykkur!

Númi Fannsker 29/10/03
Spesi – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Dr. Herbert – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Spesi – Forystugrein
 
Kaktuz – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Fannar Númason Fannsker – Forystugrein
 
Myglar – Forystugrein
 
Spesi – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Fannar Númason Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Fannar Númason Fannsker – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Spesi – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
     1, 2, 3, 4, 5, 6  
Þjóðbók
Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA