
Kvenfélagiđ Hrókurinn stendur ţessa dagana fyrir stórfelldum innflutningi á villtum dýrum: Apaköttum, svínum, saklausum hundspottum og síđast en ekki síst miskunnarlausum rándýrum sem ekkert víla fyrir sér í ţeim tryllingslega ásetningi sínum ađ bergja á blóđi blásaklausra íslenskra fórnarlamba sinna. Já margt slćmt hefur kvenfélagiđ Hrókurinn kallađ yfir íslenskt samfélag, en ekkert sem jafnast á viđ ţađ umhverfisslys sem í vćndum er međ innflutningi á villtasta, miskunnarlausasta og grimmasta kvikindi sinnar tegundar í gjörvöllum heiminum. Hér á ég viđ slátrarann frá Moskvu, drullusokkinn og óbermiđ - Viktor Kortsnoj (einnig kallađur Victor Korchnoi).
Ţeir fáu sem lent hafa í flugbeittum klóm níđingsins úr austri og haldiđ heilsu til frambúđar, hafa ekki veriđ fáanlegir til ađ tjá sig um reynslu sína, nema ađ mjög takmörkuđu leyti. Ţekkt er ţó viđbjóđsleg árás vitfirringsins á ungan skóladreng, Jóhann Hjartarson, sem hrökklađist úr skákheimum lúbarinn á sál og líkama eftir hetjulega en vonlausa baráttu viđ úlfinn rauđa. Opinberlega "sigrađi" drengurinn í viđureign ţeirra en allir vita ađ hinn raunverulegi sigurvegari var bólsévíski strompurinn - Kortsnoj.
Ég legg ţví til ađ heilbrigđiseftirlit, umhverfisverndarsamtök, lögregla og innflutningsráđ taki höndum saman og sporni gegn innflutningi Hróksins, eđa sjái ađ minnsta kosti til ţess ađ villdýr á borđ viđ téđan Viktor verđi látin sitja í einangrunarstöđinni í Hrísey í viđeigandi tíma, eins og lög gera ráđ fyrir um slík kvikindi!
Góđar stundir.
Hér eru nokkrir frábćrir valkostir í stađ ţessa drepleiđinlega forsetaembćttis okkar. Ég legg til ađ ćđsti embćttismađur ţjóđarinnar verđi einn af eftirfarandi:
1. Konungur – dálítiđ ófrumlegt, en samt töluvert hressilegra.
2. Keisari – svipuđ pćling og konungurinn, nema bara meira töff.
3. Kalífi – honum fylgja alls kyns skemmtilegheit; vesírar, fakírar og auđvitađ fílar.
4. Kanslari – hver vill ekki skella sér á djammiđ međ Kjenslaranum?
5. Einrćđisherra (eđa frú) – hćgt ađ ná fram mikilli hagkvćmni međ ţví ađ leggja niđur ţing og ríkisstjórn .
6. Páfi – vinalegur og krumpađur lítill kall í hvítum slopp, eđa kelling.
7. Ađalritari – svolítiđ retró, en kommúnisminn er ađ koma sterkur inn aftur.
8. Ćđstistrumpur – ber ađ ofan og í rauđum sokkabuxum. Pínu gey, en heimilislegt.
9. Drottinn – dálítiđ yfirţyrmandi, en samt sjarmerandi pćling.
10. Faraó – međ ađsetur í silfurpíramída í Öskjuhlíđinni. Getur ekki klikkađ.