Fátt er leiðinlegra en að sitja undir lélegri leiksýningu, en það gerist alltof oft í reykvísku leikhúsi. Jón og Hólmfríður er EKKI slík sýning. Þvert á móti er hún rússíbanaferð sem byrjar á smákitli í maganum og endar með því að manni liggur við uppköstum - af hlátri.
Þessa sýningu sá ég á dögunum í Borgarleikhúsinu og svona ykkur að segja þá hló ég svo óheyrilega mikið að ég bókstaflega hágrét! Tárin spýttust ýmist í allar áttir eða láku lóðrétt niður kinnar mínar og upp í galopinn munninn sem þó barðist við að halda sér lokuðum svo ég heyrði hvernig verkinu vatt fram. Í raun er verkið ólýsanlegt og bar vissulega keim af leikstjórn Halldóru Geirharðsdóttur. Í raun var leikhópurinn allur frábær og leikgleðin bókstaflega geislaði af hverjum leikara.
Húrra fyrir því!