Lesbók03.01.03 — Númi Fannsker

Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Baggalúts hyggst Ingibjörg Sólrún Gísladóttir príla niður úr hásæti borgarstjóra og bjóða sig fram til Alþingis undir hentifána Samfylkingarinnar. Samkvæmt sömu heimildum tekur Eyþór Arnalds við sem borgarstjóri - en hann stýrði sem kunnugt er blómlegu símafyrirtæki þar til fyrirtækið var orðið svo geysiblómlegt að honum var ekki lengur til setunnar boðið á stóli forstjóra.

"Framsóknar"flokkurinn, sjálfstæðismenn og grænkommúnistar gráta sáran og segja borgarstýru hafa svikið sig þar sem hún átti að sitja í festum næstu fjögur árin. Ingibjörg er hinsvegar harðlínufeministi og á sig sjálf - hún má hoppa upp í með þeim sem hún kýs hverju sinni, enda trúir hún á frjálsar ástir.

En hvað með kjósendur? Hvað með allan þann fjölda sem kaus ekki R-listann heldur Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur? Ég er sjálfur í þeim hópi, en ég kvarta ekki yfir því að Ingibjörg brölti úr einum stól í annan, ekki kveina ég undan "svikum og prettum" borgarstjórans. Nei. Ég, eins og langflestir aðrir stuðningsmenn og aðdáendur Ingibjargar, fagna tækifærinu til að kjósa Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur á árs fresti, í stað fjögurra ára. Ég hlakka til að merkja við Ingibjörgu AFTUR og skora á hana að gefa kost á sér sem formaður Samfylkingarinnar hið fyrsta - svo við getum kosið hana aftur og aftur og aftur.

Svo eru líka forsetakosningar innan fárra ára.

 
Enter — Sálmur
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Enter — Forystugrein
 
        1, 2, 3, ... 180, 181, 182