Lesbók11.12.02 — Enter
Nú er einhver vitleysingurinn búinn að hljóðrita þetta gamla kvæði mitt - að mér forspurðum! Svipað og þegar fyllibytturnar í The Pouges sneru þessu í árdaga, gerðu við lagstúf og kölluðu 'The Fairytale of New York'.

það var þorláksmessa
myrkrið vakti mig
mér fannst eitt augnablik að allt væraftur gott
þá sá ég stjörnu
sem starði niðrá mig
ég hysjaðuppum mig og hafði mig á brott

hraktist heim á leið
upp í bólið skreið
ég keypti lottó - og kannski vinnum við
æ, elsku krúttið mitt
það eru jólin
við skulum þrauka þau - og þykjast, eins og hin

það að flytja í borg
er víst betra en allt
þó bévítans frostið sé alveg jafn kalt
ég leiddi þig blind
því þú lofaðir mér
að lifa við myndum í paradís hér

þú varst flottur - þú fögur
það flug'um þig sögur
en við höfðum hvort annað og okkur var rótt
við héldum í bæinn
og Haukur tók 'Fræin'
við kysstumst á ísnum við Iðnó þá nótt

það var róni út við ráðhúsið
að raula 'Heims um ból'
meðan Hallgrímskirkja
hringdinn enn ein jól

þú ert þroskaheft svín
- þú með töflur og vín
og getur þig tæplegúr rúminu reist
- þú daunilla bytta
og duglausa lydda
þú mátt takessi jól þín og troða - þú veist!

það var róni uppá ráðhúsi
að rymja 'Heims um ból'
meðan Hallgrímskirkja
hringdá enn ein jól

ég vildi meikaða
- en varst of veikgeðja
þér tókst að kæfa allt sem mér var kærast
ég reyndað elska þig
eins og sjálfan mig
það er fyrir harðræðið, sem hjörtu okkar bærast

það er blánefjaður barnakór
að baula heims um ból
meðan Hallgrímskirkja
hefur enn ein jól

 
Spesi — Sálmur
 
Enter — Sálmur
 
Myglar — Sálmur
 
Spesi — Sálmur
 
Myglar — Sálmur
 
Enter — Sálmur
 
Spesi — Sálmur
 
Enter — Sálmur
 
Spesi — Sálmur
 
Enter — Sálmur
 
        1, 2, 3, 4, 5, 6 ... 16, 17, 18