Pistlingur – Spesi
Spesi

Ávallt er það sönn og einlæg ánægja fyrir okkar litla land þegar okkur heimsækja heimsfrægir listamenn til að lyfta andanum og næra sálina með tónlistaflutningi sínum. Mikið verk hefur verið unnið hér á landi við að flytja inn alls kyns graðhesta sem flytja það sem kallað er rock'n roll og má nefna því til stuðnings ýmsar hátíðir sem haldnar hafa verið að undanförnu, en þar má líta óalandi og óferjandi táninga í annarlegu ástandi stíga trylltan dans við þau óhljóð sem ribbaldarnir ákveða að framleiða hverju sinni. Á hinn bóginn hefur hin sanna tónlist, sem ýmist er af illgirni uppnefnd sígild eða alvarleg, ítrekað beðið lægri hlut fyrir rockinu þegar til þess kemur að flytja inn listamenn erlendis frá. Lengi hef ég beðið þess að úr þessu rætist, setið í stofu minni gnístandi tönnum og gráti nærri yfir hlutskipti mínu og annarra listhneigðra Íslendinga og látið mér nægja að sitja þolinmóður tónleika okkar annars ágætu sinfóníuhljómsveitar.

En viti menn! Nú virðist sem metnaðarfullir tónleikahaldarar séu loks að taka við sér. Til marks um það var stórkostlegum erlendum listamanni nýlega boðið að halda tónleika hér á landi. Er þar um að ræða hið einstaka tónskáld og söngkonu ungfrú Bjork sem kom hingað til lands alla leið frá hinu þekkta heimsveldi Englandi til að flytja tónlist við undirleik Sinfóníuhljómsveitar Íslands.Sem listunnandi gat ég vitaskuld ekki látið mig vanta á viðburð sem þennan og sótti því þessa tónleika fullu eftirvæntingar.
Og hvílíkir tónleikar! Með ungfrú Bjork í för voru tveir einkar magnaðir amérískir framúrstefnulistamenn, hörpuleikari, inúítasöngkona og grænlenskur stúlknakór. Saman magnaði þessi fölþjóðlegi hópur einstakan seið sem töfraði áheyrendur alla svo um munaði.

Ekki ætla ég að hætta mér út í greiningu á tónlist þeirri sem þarna var flutt, til þess starfa eru kallaðir menn sem mér eru mun hæfari. Aðeins vil ég að lokum minnast á eitt atriði varðandi flutninginn, en það snýr að texta sönglaganna.Við nokkur laganna flutti ungfrú Bjork nefnilega íslenskan texta, en það er nokkuð sem ég hefi aldrei heyrt erlendan listamann gera áður. Vakti þetta töluverða undrun mína, en einnig aðdáun, því augljóst er að hún hefur lagt mikla vinnu í þýðingu textanna úr engilsaxnesku. Þegar síðan kom að lagi er nefnist Akkerislagið - en í texta þess kemur fyrir setningin "Hér á ég heima" - varð mér þetta ljóst: Ungfrú Bjork vill flytjast til Íslands og einnig flytja ríkisfang sitt hingað! Þessi uppgötvun varð til þess að stífla mín brast og ég felldi tár sem barn væri og það skammlaust innan um fullan sal af fólki.

Í kjölfar vitrunar minnar vil ég segja eitt við ráðamenn íslensku þjóðarinnar: Komið er að yður að leggja yðar að mörkum til að draumur þessa stórkostlega listamanns verði að veruleika. Ungfrú Björk hefur gert drauma sína ljósa á alþjóðavettvangi og nú kemur í okkar hlut að sjá til þess að þeir rætist. Hér á hún heima!

Fréttir
Númi Fannsker – 16/5/13
 
Enter – 13/5/13
 
Útgáfa
Lesbók frá fyrri tíð

Sveita- og alþýðutónlistararmur Baggalúts mun, ef veður leyfir, halda til Bolungarvíkur snemma í fyrramálið til að leika þar fyrir dansi og drykkjulátum. Verður sveitin skipuð einvalaliði og m.a. verða flutt sérstaklega til landsins tvö sænsk krútt, ef veður leyfir.

Hafa skipuleggjendur ferðarinnar legið yfir veðurspám undanfarna daga og fölnað og svitnað á víxl. Allt er vitanlega á kafi í snjó þarna á nyrstu mörkum hins byggilega heims og hættan á veðurteppingu eitthvað í kringum 97% prósentustigin.

Kostir þess að svífa nötrandi gegnum sviptivinda og éljagang voru metnir fleiri en að mjatlast akandi yfir glerhálar heiðar og inn eftir sköflóttum fjörðum – og var því ákveðið með semingi að fljúga á leiðarenda.

Hafa heimakærir liðsmenn Baggalúts varla sofið dúr frá því fyrstu stormviðvaranir tóku að berast – og hafa skelfilegar myndir ísi lagðra hreyfla, grjótspúandi fjallshlíða, hrynjandi snjóþekna, blóðþyrstra ísbjarna og herskárra Hnífsdælinga svifið mönnum fyrir hugskotssjónum síðustu daga og nætur.

Hafa menn búið sig og sína undir yfirvofandi vetursetu innikróaðra köntrítónlistarmanna á hjara veraldar jafnt andlega sem líkamlega; sótt námskeið í sjófugla- og rostungsveiði, ísklifri og bolvíkskri menningarsögu.

Á morgun rennur svo dagurinn örlagaríki upp. Ef allt (eða flest) gengur að óskum mun fölleit og taugateygð sveitin troða upp um miðnæturbil og trylla lýðinn af einurð og áfergju - jafnvel frumflytja eins og eitt jólalag.

Ef - og bara ef - veður leyfir.

Spesi – Dagbók
 
Spesi – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Spesi – Dagbók
 
Spesi – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Sálmur
 
Spesi – Dagbók
 
Enter – Sálmur
 
Enter – Sálmur
 
Enter – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Spesi – Forystugrein
 
Spesi – Sálmur
 
Fannar Númason Fannsker – Forystugrein
 
        1, 2, 3 ... 84, 85, 86 ... 88, 89, 90  
Þjóðbók
Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA