Pistlingur – Spesi
Spesi

Ég varð nýlega fyrir áhrifamikilli reynslu, þar sem ég sat heima í stofu og horfði á Ríkissjónvarpið. Milli dagskrárliða var verið að sýna ýmis myndbönd hljómsveita og meðal þeirra var myndbandið Viðrar vel til loftárása með hljómsveitinni Sigur Rós. Það er ekki laust við að farið hafi um mig hrollur við að horfa á þetta myndband og mun ég nú leitast við að skýra ástæður þess.

Myndbandið fjallar um föður sem í af öllum mætti reynir að beina ungum kynvilltum syni sínum á réttar brautir. Drengurinn sá er ungur og fagur - á að giska 13 ára - og stundar það að leika sér með dúkkur niðri við höfn. Faðirinn grípur því til þess ráðs að senda drenginn í knattspyrnuskóla þar sem hann getur umgengist aðra pilta á heilbrigðan hátt.
Víkur nú sögunni að knattspyrnuleik nokkru síðar. Drengurinn hefur augljóslega hlotið góða þjálfun og sýnt fram á mikla hæfileika. Í kappleiknum sýnir hann mikla færni og fyrr en varir hefur hann skorað mark. Félagar hans fagna honum heitt og innilega eins og gengur og gerist í knattspyrnu. Myndast á vellinum heljarinnar hrúga af fagnandi liðsmönnum drengsins. En viti menn! Þegar losnar um hrúguna liggur pilturinn eftir og hefur náð undir sig einum félaga sinna og tekist að smita hann af kynvillu sinni!
Faðirinn bregst ókvæða við og tekur til við að rífa son sinn burt frá fórnarlambi sínu. Knattspyrnuprófasturinn grípur í fórnarlambið og reynir að reka úr honum þá illu anda sem kynvillingurinn tróð í hann með tungu sinni. Á þennan hátt lýkur myndbandinu.

Boðskapurinn með þessu myndbandi er augljós: Kynvilla leynist víða og verður ekki auðveldlega kveðin niður. Því verðum við að vera stöðugt á varðbergi og gefast ekki upp í baráttunni gegn þessum vágesti. Tökum okkur föðurinn í myndbandinu til fyrirmyndar og látum ekki deigan síga þó illa gangi í fyrstu að kveða niður ófögnuðinn.

Hljómsveitin Sigur Rós á þakkir skildar fyrir að sýna svo ekki verður um villst hversu erfitt þetta fyrirbæri er meðferðar. Augljóst er af efnistökum að meðlimir hafa mikla þekkingu á málefninu og er það vel.

Fréttir
Númi Fannsker – 16/5/13
 
Enter – 13/5/13
 
Útgáfa
Lesbók frá fyrri tíð

Þá er hafísinn lagstur að landi. Forni fjandinn, hvíta vítið.

Landið allt í hábölvuðum heljargreipum. Flóar og firðir fyllast af ís, skip sitja föst - og hafið andar köldu yfir menn og skepnur. Skítköldu.

Eitt er það þó ánægjulegt sem fylgir þessum krapakögglum úr norðri. Nefnilega blessaðar skepnurnar sem hingað villast. Þunglamalegir rostungar, frostlemúrar og heimskautarefir fljóta hingað ráðvilltir og ringlaðir á tignarlegum borgarísjökum yfir íshafið - og svo auðvitað hvítabirnir.

Konungar norðurhjarans.

Menn hafa gegnum aldirnar haft illan bifur á ísbjörnum, skiljanlega svosum. Þeir eiga það auðvitað til að narta í búfénað, jafnvel bændur þegar þeir loks koma að landi eftir margra vikna volk, glorsoltnir og illa til reika. En hver getur láð þeim það? Ég held að fæstir myndu fúlsa við hjólspikaðri íslenskri heimasætu eftir einmanalega helsvelta jakasetu - þó dags daglega séu þær vissulega heldur ókræsilegar.

En allt um það.

Ég vil hvetja fólk til að taka þessum pólsku sómaskepnum vel og sýna þeim tilhlýðilega gestrisni ef þeir skyldu knýja dyra. Ekki sökkva í fen fordóma og mannvonsku og rjúka út í blindu morðæði með haglabyssu og púðurkellingar. Ekki fylla garða og gerði með jarðsprengjum og bjarndýrsgildrum. Það er engum til gagns.

Það er hvorki hipp né kúl að státa af skítsæknum ísbjarnarfeldi í stofunni. Nei, miklu fremur er gaman að eignast nýjan vin af framandi slóðum, sem - er hann hefur fengið matarlús að éta - getur reynst hinn besti félagi - enda hvítabirnir upp til hópa ljóngáfaðar og skemmtilegar skepnur.

Já, tökum vel á móti ísbjörnunum. Mundu að næst gætir það verið þú sem hrekst undan veðri og vindum á rambandi hafísfleka til ókunnra landa.

Enter – Sálmur
 
Enter – Sálmur
 
Enter – Sálmur
 
Enter – Forystugrein
 
Spesi – Sálmur
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Fannar Númason Fannsker – Forystugrein
 
Spesi – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Sálmur
 
Spesi – Sálmur
 
Dr. Herbert – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Sálmur
 
Enter – Sálmur
 
Enter – Forystugrein
 
Kaktuz – Sálmur
 
Kaktuz – Sálmur
 
Enter – Sálmur
 
Kaktuz – Forystugrein
 
        1, 2, 3 ... 85, 86, 87, 88, 89, 90  
Þjóðbók
Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA