dilla ég drósum
dökkum og ljósum
það finnst mér ferlega gaman
þar til þær æla
þagneða skæla
þá lem ég þær sundur og saman
Jæja. Þá er hann Magni okkar skilinn. Að minnsta kosti stendur það ritað svart á hvítu í DV. Þar er nefnilega birt yfirlýsing frá Magna og hans fallegu konu, þess efnis að þau hafi slitið samvistum. Ástæðan er skyndilegur bráðaframi Magna - sem í kjölfarið var útnefndur austfirðingur ársins og meiraðsegja heiðraður sérstaklega af hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps.
Þau ætla bæði að ala upp son sinn, Marínó - sem er alls ekki sjálfsagt þegar rokkstjarna á í hlut. Gott að vita til þess.
En spurningin sem brennur á íslensku þjóðinni - gott ef ekki heimsbyggðinni allri er hinsvegar þessi: Hvað verður um allar fínu mubblurnar sem við sáum svo eftirminnilega í Innliti-útliti? Að ekki sé minnst á sjálfa eldhúsinnréttinguna! Fá þau sameiginlegt forræði yfir henni? Eða verður Magni að láta sér nægja að vaska upp aðra hverja helgi?