Lesbók05.03.14 — Enter

Ég brá mér síðla kvölds í mínum besta rykfrakka á dönsku gleðilífsmyndina Samræðinginn (Nymphomaniac) í afviknu kvikmyndahúsi hér í borg.

Ég var allspenntur enda skrambihreint langt síðan maður sá síðast þvottekta danska rúmstokksmynd í kvikmyndahúsi. Eða ekki síðan ég skellti mér á hina sprellmjörugu Í nautsmerkinu í Austurbæjarbíói um árið.

Ég verð þó að segja að myndin olli mér nokkrum vonbrigðum. Í stað þess ískrandi danska húmors, sem var svo heillandi við meistaraverk John Hilbert Larsen, Hopsasa på sengekanten og Tandlæge på sengekanten — var hér sleginn allt annar og dekkri tónn. Lítið sem ekkert var um sprenghlægilega eltingaleiki, gáskafullt daður og tvíræða brandara.

Aukinheldur olli aðalleikonan, Karlotta Gainsbourg, mér vonbrigðum. Þrátt fyrir að vera leikandi létt á bárunni og uppáhleypingasöm með afbrigðum er hún svo sannarlega engin Annie Birgit. Það var engu líkara en hún fyndi aldrei almennilegan þennan hlýlega, eggjandi danska neista við rúmstokkinn — og væri meira að þessu meðan hún biði eftir næsta lottódrætti. Því miður.

Aðallega held ég að það megi skrifa blóðlitla og allt að því líflausa niðurstöðuna á leikstjórann, Lars von Trier, sem virðist — ótrúlegt en satt — ekki þekkja þessa fallegu og gáskafullu dönsku kvikmyndahefð nægilega vel. Þrátt fyrir að vera danskur í húð og hár. Og þrátt fyrir að hafa gert margar sprellfjörugar og sprenghlægilegar myndir gegnum tíðina, fullar af hárfínum dönskum húmor. M.a. með henni Björk okkar.

Nú mun vera á leiðinni framhald Samræðingjans og er óskandi að Lars taki við sér og komi blóðinu á hreyfingu hjá áhorfendum. Mæli ég í því samhengi að hann blási rykið af nokkrum vel völdum VHS spólum með sígildum dönskum meistaraverkum og skelli þeim í tækið (t.a.m. Rektor på sengekanten eða hinni ærslafullu Damernes ven) — og komi sér þannig í gírinn áður en hann fer yfir lokaklippið.

 
Enter — Sálmur
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Enter — Forystugrein
 
        1, 2, 3, ... 180, 181, 182