Hananú! Eru nú einhverjir minnipokafulltrúar að tuða yfir einhverjum fox- og foráttuljótum steinhlunki sem þeir kalla minnismerki um borgaralega óhlýðni.
Það var þá helst.
Ég veit ekki betur en að á miðjum Austurvelli standi þetta glæsilega minnismerki um borgaralega óhlýðni. Sjálf styttan af Jóni forseta.
Borgaralegri ólátabelgur og mótmælagosi er vandfundinn á söguspjöldum.
Vilja þau ekki bara fjarlægja hann í leiðinni og loka ofan í forpokunaskápnum sínum?
---
Hitt er svo allt annað og alvarlegra mál, að menn eiga ekki að komast upp með það að kasta grjóti og skilja það eftir á víðavangi – sér í lagi beint fyrir framan óvita.