Dagbók – Myglar
Myglar

Þar sem Baggalútur er í sumarfríi er tilvalið að sannleiksþyrstir lesendur kynni sér aðra vandaða og þjóðrækna miðla, eins og til að mynda hina nýju vefsíðu Ísmús.

Sérstaklega viljum við í því sambandi mæla með að fólk hlýði á Baggalútarþulu.

Fréttir
Númi Fannsker – 16/5/13
 
Enter – 13/5/13
 
Útgáfa
Lesbók frá fyrri tíð

Fátt er tignarlegra en fallegur spítali; glæsilegur nýmóðins spítali, skjanna­hvítur og þrifalegur. Þetta vita allir.

Fátt er tilkomumeira en þyrping háreistra sjúkrahúsbygginga; hátæknilegra hlýlegra mannvirkja sem teygja sig yfir mikið svæði öllum sem á líta til yndisauka og gleði. Það er alkunna. Staðreynd.

Fátt tekur fram því iðandi mannlífi sem skapast umhverfis slíka vin. Bílastæði eftir bílastæði fyllt brosmildum sjúklingum og aðstandendum þeirra á tali hver við annan um ýmis mein. Vingjarnlegir læknar og brosmildir nemar á hverju strái, allir reiðubúnir að miðla af visku sinni og vísdómi. Þekkingarsamfélag. Iðavellir.

Fátt, ef nokkuð, tekur fram vinalegu vælinu í emjandi sírenum á friðsælum sunnudagsmorgni, nema ef vera skyldi róandi gnýr sjúkraþyrlna á kyrri vetrarnótt.

Og ekkert - ekkert tekur því fram að rölta um litlu borgina sína á fallegum sumardegi, njóta þess að horfa á blessaðar flugvélarnar lenda við ljúfan söng kría og máva - og geta um leið óhræddur stytt sér leið yfir nýja, glæsta Hringbrautina á háannatíma - í þeirri góðu trú, þeirri óbifandi vissu að fullkomnasta hátæknisjúkrahús Evrópu, ef ekki alls heimsins er innan seilingar.

Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Sálmur
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Sálmur
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Gagnrýni
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Myglar – Dagbók
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Gagnrýni
 
     1, 2, 3 ... 88, 89, 90  
Þjóðbók
Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA