
Ţessa áhugaverđu lesningu rakst ég á í vestur-íslenska tímaritinu Vínlandi, sem kom út í Manitoba 1902-1908:
„Pétur ţessi kom frá Texas og ţótti illur viđureignar. Hann var hérumbil jafn fyrirferđar á lengdina og ţverveginn, međ kaflođinn kjaft og augnabrúnir. Hann hafđi ekki góđan mann ađ geyma, og fann upp á öllum skrattanum öđrum til meins. Hann var lygari, ţjófur og eiturnađra í ţríeiningu. Og ţađ ţori eg ađ segja ađ Texas Pési horfđi ekki meira í ađ drepa mann en fá sér ađ drekka – og honum varđ ţó ekki flökurt af sopanum piltinum ţeim. Friđsamir menn töluđu hógvćrlega og létu hann alveg eiga sig; óróaseggjum holađi Pétur einhversstađar niđur úti á sandinum.“
Ţetta gćti vakiđ áhuga ţeirra sem muna eftir hinum velska og rauđklćdda Ofurbangsa, sem var tíđur gestur á skjám landsmanna á 9. áratug síđustu aldar. En hans erkióvinur var einmitt Texas-Pési.

Ţá er Kaupţing búiđ ađ skipta um nafn. Enn eina ferđina.
Ágćtis nafn svo sem. Ţjóđlegt og gott ađ muna: Ari Jón.
Ég geri ráđ fyrir ađ skírt sé í höfuđ ţeirra Ara fróđa Ţorgilssonar og Jóns Sigurđssonar.
En hinsvegar.
Ef ţetta spređhyski dirfist ađ framleiđa svo mikiđ sem eina músarmottu međ nýja nafninu og lógóinu – og fleygja á móti fullnýtilegum skrifstofubúnađi, neonskiltum eđa brjóstsykurspappír – ţá skal ég persónulega sjá til ţess ađ skilanefnd Nýja Kaupţings éti hvert einasta nýlógóađ pappírssnifsi upp til agna.