Dagbók – Númi Fannsker
Númi Fannsker

Nú eru allir að tala um píkur. Hvort þær megi vera loðnar eða megi ekki vera ekki loðnar. Hvort fólk eigi að láta breyta á sér píkunum eða eigi ekki að breyta þeim. Eða ekki breyta þeim ekki. „Hina fullkomnu píku“ hefur líka borið á góma í umræðum undanfarið. Þetta er skemmtilegt.

Píkur eru nefnilega svo skemmtilegar og frábærar. Svo er líka bara svo óendanlega gaman að skrifa og segja þetta orð; píka. Píkapíkapíkapíka.

Soddan. Þá er ég búinn að því þennan daginn.

Einu sinni enn... Píka!

Lesbók frá fyrri tíð

Jæja - þá er umræðan um fíkniefnaneyslu unglinga farin af stað aftur. Eina ferðina enn. Fréttin af börnum á grunnskólaaldri á bólakafi í fíkniefnum. Alltaf jafnstuðandi frétt. Alltaf jafnhryllilega sláandi. Allir alltaf jafnyfirsighlessa. Samt er búið að flytja okkur þessa frétt hundraðþúsund sinnum - og hún er alltaf eins.

Af hverju druslast okkar ágæta samfélag ekki bara til að ráðast gegn þessum ósköpum af fullum krafti? Af hverju setjum við ekki bara ALVÖRU peninga í fræðslu fyrir þessa krakka og foreldra þeirra - eigum við að segja milljón fyrir hvert skipti sem þessi umræða hefur farið af stað? Bara negla einhverjum milljörðum í að búa til fræðsluefni sem krakkarnir nenna að taka til sín. Hætta þessu helvítis plakatavæli og keyra á þetta eins og menn!

Upp með veskið - burt með dópið!

Númi Fannsker 24/11/05
Enter – Forystugrein
 
Enter – Sálmur
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Forystugrein
 
        1, 2, 3, 4 ... 88, 89, 90  
Þjóðbók
Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA