Dagbók – Númi Fannsker
Númi Fannsker

Nú eru allir að tala um píkur. Hvort þær megi vera loðnar eða megi ekki vera ekki loðnar. Hvort fólk eigi að láta breyta á sér píkunum eða eigi ekki að breyta þeim. Eða ekki breyta þeim ekki. „Hina fullkomnu píku“ hefur líka borið á góma í umræðum undanfarið. Þetta er skemmtilegt.

Píkur eru nefnilega svo skemmtilegar og frábærar. Svo er líka bara svo óendanlega gaman að skrifa og segja þetta orð; píka. Píkapíkapíkapíka.

Soddan. Þá er ég búinn að því þennan daginn.

Einu sinni enn... Píka!

Lesbók frá fyrri tíð


    Fyrir þá sönnu Íslendinga sem fara til Þýskalands:

  • Talið ekki við innfædda, nema með því að öskra óþægilega hátt á þá.

  • Sprænið á eins margar opinberar byggingar, styttur og ríkisstarfsmenn og þið getið.

  • Ávarpið allar konur 'Eva' og alla karlmenn 'Adolf'.

  • Maulið hvalkjöt í tíma og ótíma og gangið í selskinnsfötum - helst með kópshöfuð um hálsinn.

  • Finnið Rudi Völler og spyrjið hvort hann vilji skipta á ekta íslenskri kind og apanum í þýska markinu.

Fyrir þá sem kjósa að svíkja föðurlandið og sitja heima:


  • Málið híbýli ykkar í fánalitunum og komið fyrir líkneski af Eiði Smára úti í garði.

  • Aflýsið öllu á morgun. Öllu!

  • Lokið alla efasemdarmenn (konur, listamenn, blakáhugamenn - eða aðra þá sem ekki skilja list fótboltans) inni í nærtækum skápum.

  • Fægið sjónvarpsskjáinn - tvisvar.

  • Sofið með mynd af Ásgeiri Sigurvinssyni undir koddanum.

  • Biðjið fyrir landsliðinu í kvöld.

Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
        1, 2, 3, ... 88, 89, 90  
Þjóðbók
Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA