Forystugrein – Enter
Enter

Köntrísveit Baggalúts heldur Vortónleika sína í Gamla bíói á föstudaginn, 11. maí.

Af því tilefni tókum við okkur til og endurgerðum þjóðþekkta
ljósmynd sem var tekin árið 2006 við gamla braggann í Nauthólsvík.

Fyrirsæturnar á nýju myndinni eru hins vegar ekki meðlimir sveitarinnar, heldur feður þeirra. Og taka þeir sig ekki síður vel út í strandköntrígallanum en synirnir.


Hér er nýja myndin:


Og hér er sú gamla:

Tónleikarnir hefjast kl. 21.00 og ætlar Baggalútur að slá upp mikilli köntríveislu með tilheyrandi húllumhæi. Húsið opnar 18:00 og getur fólk hresst sig við fyrir tónleikana í glæsilegum salarkynnum á efri hæð Gamla bíós og notið skemmtiatriða og góðs félagsskapar. Miðasala er á fullu blússi HÉR.

Jííííííííha!

Lesbók frá fyrri tíð

Það eru örugglega fleiri en ég sem hafa rekið augun í glaðhlakkalega jólasveina utan á mjólkurfernum síðustu daga. Og það eru örugglega líka fleiri en ég sem hafa reiðst við þá sjón.

Ég get skilið að Íkea og Húsasmiðjan og Smáralind og Hagkaup og Kringlan og svo framvegis sjái sér hag í því vekja hjá fólki snemmbúið jólaskap. Slíkt getur alltaf skilað auka krónum í kassann, enda jólin eini tíminn sem hægt er að fá neytendur til að versla af áfergju án þess að þeir fái samviskubit. Ég get skilið afstöðu slíkra verslana, þó ég sé auðvitað algjörlega á móti henni.

Ég get hins vegar ómögulega skilið hvað fær Mjólkursamsöluna til að setja jólaskraut á mjólkurfernurnar um miðjan nóvember. Er sala á nýmjólk virkilega svo sveiflukennd að nauðsynlegt sé að koma neytendum í jólaskap svo þeir hætti ekki að kaupa?

Þetta uppátæki er miklu verra en jólaauglýsingar og -skraut verslananna, því ef manni líkar ekki slíkt getur maður bara sleppt því að fara í viðkomandi verslun. Það sama á hins vegar ekki við um mjólkina, enda mjólkin vara sem fæstar fjölskyldur geta verið án.

Með þessu tiltæki er Mjólkursamsalan að troða jólastemmningu upp á alla þá sem ekki kæra sig um hana á þessum tíma árs. Svona mjólk finnst mér vond.

Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Sálmur
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Sálmur
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Gagnrýni
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Myglar – Dagbók
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Gagnrýni
 
     1, 2, 3 ... 88, 89, 90  
Þjóðbók
Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA