Gagnrýni – Enter

Ég gerđi undantekningu frá sjálfskipađri kvikmyndahúsaútlegđ minni í kvöld. En ég er sumsé orđinn ađ mestu frábitinn ţeirri fyrrum anganiđju minni, eftir ađ mér var uppálagt ađ sitja međ fánalegar skynvillusólbrillur undir auglýsingaflóđi, símatísti og unglingagargi í hávađauppţembdum poppangandi flónelgeymum, til ţess eins ađ verđa fyrir síendurteknum vonbrigđum og stađfestingu á hnignun mannsandans.

En hvađ um ţađ. Ég fór sumsagt ađ sjá finnskćttuđu kvikmyndina Iron sky, eđa Járnloft í leikstjórn hins kornunga Timo Vuorensola, eftir handriti nokkurra hressra Finna.

Myndin er í sem stystu máli ţađ langfremsta, fegursta og fullkomnasta sem kvikmyndalistin hefur getiđ af sér frá upphafi.

Ekki nóg međ ađ í henni séu óđir tunglnasistar, albínóablökkumađur, geimloftskip og brókarsýktur markađsfrćđingur heldur er ţar líka ađ finna dásamlega samsett samtöl, firrta fléttu, sprúđlandi húmör og sjaldséđan sárstingandi brodd.

Og til ađ hafa ţađ a hreinu, ţá er ekki um ađ rćđa neinn aukvisabrag eđa nánasarhátt á leikmynd, brellum og búningum. Ekkert miđevrópskt mođsođiđ miđjumođ, heldur alvöru sprengjur, alvöru ţýska og alvöru snjáđ tunglnasistaklćđi.

Miđađ viđ međferđina á kapítalinu ţá er raunar magnađ ađ ţessi mynd hafi veriđ fjármögnuđ yfirleitt. Ţađ ţurfti enda ađ leita ađ auraflćđi í myndina alla leiđ til Ástralíu. Og eitthvađ segir mér ađ stóra Epliđ í vestri hafi ekki lagt til mikinn pening í púkkiđ.

Ég hlýt ţví ađ mćla hiklaust og ofsafengiđ međ ţessari mynd fyrir alla sanna unnendur kvikmyndalista, nasisma, tísku og markađsfrćđa. Ađ ekki sé talađ um sjúklega smartra geimmannvirkja og -drápstóla.

Heill Finnlandi!

Lesbók frá fyrri tíđ

Nú eru löggumenn snaróđir yfir lélegu kaupi og bágum kjörum. Ţar áđur voru ţađ bandsturlađir leikskólakennarar. Ţađ ţykir mér miđur. Ţetta eru jú ţćr tvćr stéttir manna, auk öskukarla- og kerlinga, sem ég vil ađ líđi sem best í sínu starfi – til ađ geta sinnt ţví (og mér) af ţeirri alúđ sem ţörf krefur hverju sinni.

Verri ţykir mér ţó ţögnin hjá öđrum og óţarfari stéttum. Af hverju eru lögfrćđingalufsurnar ekki brjálađar yfir sínum kjörum? Eđa bankasnúđarnir? Nú eđa allar millistjórnendadulurnar? Og forstýringa­himpigimpin?

Mikiđ liđi mér betur ef ţađ yfirlaunađa hyski neyddist til ađ rotta sig blánefjađ saman á götuhornum til ađ heimta betri kjör. Öskuţreifandi saltvondir bankabéusar og dindilóđar dragtklćddar skilanefndaskvísur. Ţađ vćri indćlt. Ţá liđi mér eins og eitthvađ réttlćti vćri hugsanlega til í henni veröld.

En neibbs, ţađ viđist ekki ţörf á ţví. Ţví er nú miđur og verr.

Sem bendir til ađ viđkomandi ţjóđsugur séu bara nokkuđ sáttar viđ sinn hlut. Sem er eiginlega bara ansi hreint fimbulflennifokking skítt.

Fannar Númason Fannsker – Forystugrein
 
Kaktuz – Forystugrein
 
Enter – Sálmur
 
Kaktuz – Forystugrein
 
Enter – Sálmur
 
Kaktuz – Sálmur
 
Kaktuz – Sálmur
 
Kaktuz – Sálmur
 
Enter – Sálmur
 
Enter – Sálmur
 
Kaktuz – Sálmur
 
Kaktuz – Sálmur
 
Enter – Saga
 
Fannar Númason Fannsker – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Sálmur
 
Kaktuz – Sálmur
 
Enter – Sálmur
 
Myglar – Sálmur
 
Kaktuz – Saga
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
        1, 2, 3 ... 87, 88, 89, 90  
Ţjóđbók
Baggalútur er hýstur af alúđ og umhyggju hjá ADVANIA