Forystugrein – Númi Fannsker
Númi Fannsker

1. Þátttaka San Marínó í Eurovison
2. Hárlitur Sölku Völku
3. Skófir eða mosi?
4. Tómatur eða túmatur?
5. Matseðill frímúrarareglunnar
6. Gæði kvikmyndarinnar 'Nei er ekkert svar'
7. Pez-bragð
8. Skór forsætisráðherra
9. Er krydd matur?

Fréttir
Enter – 3/6/13
 
Númi Fannsker – 28/5/13
 
Útgáfa
Lesbók frá fyrri tíð

Ég þoli ekki allar þessar déskotans banka­aug­lýs­ing­ar sínkt og heilagt. Þoli þær ekki.

Allar eru þær frámuna­lega langar - og allar innihalda þær endalaus, flórsykurhúðuð myndskeið af misviðurstyggilega brosmildu fólki, sem ýmist er að skeina börnunum sínum eða dást að uppstilltum og raðgreiddum eigum sínum - við gerilsneyddan undirleik einhverra froðupyppilda.

Ofan á allan hroðann bætist svo lúshægur og slepjulegur upplestur innihaldsfrírra og merkingarskertra gífur­yrða úr samheitaorðabók Menningar­sjóðs.

Ullabjakk, gæti einhver sagt.

Svo er þetta sýnt linnulaust - á öllum stöðvum, öllum stundum. Manni er hvergi undankomu auðið frá gargandi tóma­hljóðinu, stílfærðri auðninni.

Óþolandi, gersamlega.

Ef þessir bankabesefar þurfa endilega að kasta peningum á glæ mættu þeir gjarnan gera það svo vammlausir viðskiptamenn þeirra sjái ekki til.

---

Og svona fyrst maður er að eyða orðum á þessa uppþembdu peningatanka. Hvað er eiginlega með þennan Íslandsbanka­umskipting, Glitni? Er mönnum fyllilega sjálfrátt þegar þeir slá upp andlitsmynd af manni með blæðandi ör og heftiplástur á enninu á heimasíðu stöndugrar fjármálastofnunar?

Enter – Sálmur
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Sálmur
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Sálmur
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Gagnrýni
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Myglar – Dagbók
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Forystugrein
 
     1, 2, 3 ... 88, 89, 90  
Þjóðbók
Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA