Forystugrein – Enter
Enter

Ég hef íhugað, ígrundað, velt fyrir mér og krufið til mergjar – þessa fádæma fáheyrðu ákvörðun Hr. Ólafs Ragnars að skammta sér fjögur ár enn í embætti forseta lýðveldisins.

Og alltaf kemst ég að sömu niðurstöðu. Þeirri einu sem einhverju vatni heldur og meikar einhvern agnarminnsta sens. Og hún er þessi:

Ólafur Ragnar hefur komist á snoðir um falinn fjársjóð á Bessastöðum, hugsanlega smaragðssjóð Sveins Björnssonar, fiðrildasafn Ásgeirs, eða jafnvel múmíugrafhýsi Kristjáns Eldjárns. Eða álíka.

Þessa fjársjóðs leitar hann logandi ljósi allar nætur, með forsetarekuna að vopni – og getur ekki hugsað sér að yfirgefa sundurgrafinn bústaðinn fyrr en hann hefur fundið gersemarnar og öðlast þar með hugarró.

Þetta hlýtur að vera skýringin. Því ekkert annað hefur maðurinn að gera þarna áfram.

Lesbók frá fyrri tíð

Hananú! Er nú búið að hafa hann Gest af manni? Að manni forspurðum! Hvert þó í hoppandi!

Hvaða reginiðjóti datt í hug að taka ástmögur þjóðarinnar af dagskrá? Eina útvarpsmann í heiminum sem kemst upp með að spila þrjú Bítlalög í röð og tala yfir megnið af þeim. Um veðrið.

Hann Gestur okkar! Sem við elskum öll og dáum. Farinn. Að eilífu þagnaður! Á maður þá ekkert að kveikja á útvarpinu framar á morgnana? Jesúsminn! Ég hugsa með hryllingi til aðfangadags - það verða engin jól ef Gestur Einar spilar ekki Jussa Björling í lok síns árlega jólaþáttar. Engin jól! Og á þá að hafa af manni jólin líka?

Vei þeim sem tóku þessa ömurlegu ákvörðun í andstöðu við heila þjóð - skömm þeirra er mikil!

Númi Fannsker 1/12/05
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Sálmur
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Sálmur
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Gagnrýni
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Myglar – Dagbók
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Gagnrýni
 
     1, 2, 3 ... 88, 89, 90  
Þjóðbók
Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA