Forystugrein – Enter
Enter

Fyrir hverja er frjálshyggja? Þetta er einföld spurning sem auðvelt er að svara. Frjálshyggja er fyrir þá sem unna frjálshyggju – frjálshyggjuunnendur.

Hvernig getur það þá verið, að allir skattgreiðendur, sama hvort þeir unni frjálshyggju eður ei, séu neyddir til að greiða ákveðnum frjálshyggjumönnum laun?

Hver og einn einstaklingur á að hafa frelsi til að leita hamingjunnar á eigin vegum. Hann er frjáls gjörða sinna svo fremur sem hann skerðir ekki þetta sama frelsi annars einstaklings. Skerðing á frelsi hans er því ekkert annað en beiting á ofbeldi.

Af þessu leiðir að einstaklingur á að hafa frelsi til að velja hvort hann unnir frjálshyggju. Að skerða þetta frelsi hans er ofbeldi og það af hálfu ríkisins í tilfellinu um styrki til stjórnmálaafla sem aðhyllast frjálshyggju.

Ríkið tekur pening, sem harðvinnandi einstaklingar hafa unnið sér inn – ávöxt erfiðisvinnu sem krafðist orku, tíma og fyrirhafnar –, og hótar að viðurlögum verði beitt ef því er ekki afhent féið. Ríkið stofnar síðan nefnd sem ákveður hvaða frjálshyggjumenn hljóti fé harðvinnandi einstaklinganna og hvaða frjálshyggjumenn hljóti einfaldlega ekki neitt. Hinir sönnu unnendur frjálshyggjunnar og þeir sem öfluðu peninganna, sem eru nú í höndum útvalinna frjálshyggjumanna, fá ekkert að segja.

Þannig að svarið við þeirri spurningu, sem borin var upp hér í byrjun, er ekki svo einfalt eftir allt saman. Ríkið hefur ákveðið að allir eigi að unna frjálshyggju og nefnd á vegum ríkisins fær síðan að ákveða hvaða frjálshyggjumönnum þeir eigi að unna.

Og hvað með frelsi einstaklingsins til að velja hvaða frjálshyggjumönnum hann unnir? Það skiptir bara engu máli.

Sjá ítarefni hér.

Lesbók frá fyrri tíð

Nú keppast fyrirtæki hvert um annað þvert um að tilkynna fólki að þau sendi engin jólakort þetta árið. Sama gildir um stofnanir og hvers kyns hópa. Raunar virðist sem svo að enginn sendi jólakort þetta árið, því allir eru svo viðurstyggilega uppteknir við að láta andvirðið, sem svo er kallað, renna til góðra málefna. Sem er svosum gott og jafnvel blessað.

En hví í rauðnefjuðum roðamaurum renna þessir apakettir ekki bara sínu meinta andvirði þegjandi og hljóðalaust til sinna góðu og gildu málefna? Hvers vegna er verið að tönnlast á því í einhverjum afsakandi sparirafkveðjum?

Hverjum er ekki skítsama hvert ljósritunar- og frímerkjasleikigjaldið rennur? Þið þurfið ekkert að réttlæta það fyrir mér og mínum – og síst af öllu monta ykkur af því hve einstaklega eymingjagóð þið eruð alltaf hreint á aðventunni.

Ef þið tímið ekki að senda mér jólakort þá bara tímið þið því ekki.

Og ef þið þurfið endilega að losna við móralinn getið þið bara sleppt því að kaupa mjólk í kaffið á aðventunni og styrkt mig sem nemur bévítans andvirðinu.

Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Sálmur
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Sálmur
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Gagnrýni
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Myglar – Dagbók
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Gagnrýni
 
     1, 2, 3 ... 88, 89, 90  
Þjóðbók
Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA