Lesbók31.01.12 — Enter

Einhverjir hafa verið að býsnast og belgja sig yfir könnum sem gaf í skyn að 23% 15 ára pilta á Íslandi væru meira eða minna ófærir um að „lesa sér til gagns“ – eins og það var orðað svo hnyttilega.

Nú þekki sæmilega ég til íslenskra unglingspilta, var m.a. einn slíkur á tímabili.

Og eitt get ég fullyrt. Þessir álappalegu unglingsapar eru fullfærir um að lesa sér til gagns – altsvo að lesa það sem gagnast þeim.

Þeir geta á augabragði litið á smáskilaboð í símanum sínum og lesið þar úr torræðum táknum, sér til gagns. Þeir geta á örskotsstundu lesið í táknheim og myndmál risavaxinna flókinna tölvuleikja, sér til ómælds gagns. Þeir geta um leið greint það á jútúbmyndbandi hvort það sé þess virði að horfa á til enda, sér til gagns. Þeir þekkja og kunna skil á aragrúa kvikmynda, sjónvarpsþátta, teiknimyndasagna og vörumerkja – og neyta fjölbreyttrar tónlistar daglega. Þeir lesa virði alls þessa, notkunargildi og innihald án fyrirhafnar. Vanti þá upplýsingar rata þeir án fyrirhafnar um alla afkima netsins. Sér til gagns.

Mér er raunar til efs að nokkur kynslóð hafi verið jafn móttækileg fyrir upplýsingum og einmitt íslenskir 15 ára drengir í dag. Jafn fljúgandi læs á ólíklegustu tákn og myndir, sem gamlingjar eins og ég botna horki upp né niður í.

Eitthvað verður undan að láta. Í augnablikinu eru það óspennandi og andlausar íslenskar námsbækur, leiðigjarnar og lummó. Ef ætlunin er að að ná athygli og áhuga 15 ára íslenskra drengja – mennta þá – verðum við að gjöra svo vel að taka samkeppnina alvarlega.

Að öðrum kosti fyllist þeirra hviki haus af öllu öðru – oftar en ekki einhverri froðu sem við sem eldri erum teljum miður æskilega.

Ég hef litlar áhyggjur af læsi íslenskra pilta. Það sem ég hef áhyggjur af er að 91% íslenskra 15 ára stúlkna láti enn narra sig til að stauta sig fram úr úreldri samskiptatækni, sér til ógagns.

 
Enter — Sálmur
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Enter — Forystugrein
 
        1, 2, 3, ... 180, 181, 182