
Fennel tastebuds - Chronic standoff
Derby sandal - Gel
Massphonia - Argon blizz
Orgyville - Erotick-tack
Labrat screen - LOL
Snjóbylja - Endaþarmur
Cameleoncie - Sailor eczema
Eyjólfur - Eyjólfur
Flatlúsífer - Fokkoff
Mosel Traubfrinchel - Absorbia
Þetta eru nú meiri óslítandi vináttu- og bræðraböndin á milli Bobbys Fischers, skákmanns og Sæmundar Pálssonar, vinar Bobbys Fischers. Hugsið ykkur. Þarna situr skákmeistarinn Bobby Fischer í einangrun á sjálfan afmælisdaginn sinn og má ekki einu sinni taka á móti rós úr hendi unnustu sinnar - einni vesælli rós! Hver hefur þá upp raust sína og syngur honum afmælissönginn með sinni engilþýðu röddu annar en Sæmundur Pálsson, vinur Bobbys Fischers. Svo fallegur var þessi söngur víst að Bobby Fischer, skákmeistari ljómaði eins og sól í heiði og fangavörðunum féllust hendur. Hugsið ykkur! Féllust hreinlega hendur!
Og þegar Sæmundur Pálsson vinur Bobbys Fischers og Bobby Fischer, skákmeistari hittust loks í fangelsinu á dögunum, höfðu þeir ekki hist í yfir 30 ár! Hugsið ykkur! Í þrjátíu ár hafði Bobby Fischer, skákmeistari og milljónamæringur verið of upptekinn til að hitta Sæmund Pálsson, vin Bobbys Fischers en fyrir tilstilli góðra manna, einkum íslenska ríkisins - þ.e. okkar allra - mátti öngla saman fyrir flugmiða handa Sæmundi Pálssyni, vini Bobbys Fischers svo hann gæti heimsótt stórvin sinn í fangelsi. Og sungið fyrir hann afmælissönginn. Þvílíkt bræðralag, þvílík vinátta. Hugsið ykkur.
P.s. Til hamingju með afmælið Bobby Fischer skákmeistari!